Ögmundur: Samfélagið þarf að ná sáttum

Ögmundur Jónasson, formaður BSRB. stækka

Ögmundur Jónasson, formaður BSRB.

 Ögmundur Jónasson, formaður BSRB sagði í 1. maí ræðu sinni í Vestmannaeyjum dag að samfélagið þurfi að ná sáttum og því hafi BSRB  lagt til skammtíma samninga við ríkið í ljósi þeirrar stöðu sem nú sé í efnahagslífinu og einkennist af óðaverðbólgu og himinháum vöxtum. 

Sagði hann komið að þeim sem stýra verðlaginu að sýna ábyrgð. Það hafa þeir upp til hópa ekki gert á undanförnum árum, og bendir hann m.a. á lækkun virðisaukaskattsins á matvælum á síðasta ári í því sambandi.

Fréttatilkynning BSRB fer í heild sinni hér á eftir:

Ögmundur Jónasson formaður BSRB 1. maí:

Kveðum niður verðbólguna, breyttar áherslur við landstjórnina og efasemdir um nýumsaminn Endurhæfingarsjóð.

Ögmundur Jónasson, formaður BSRB sagði í 1. maí ræðu í Vestmannaeyjum dag að BSRB hefði lagt til skammtíma samninga við ríkið í ljósi þeirrar stöðu sem nú væri í efnahagslífinu, sem einkennist af  óðaverðbólgu og himinháum vöxtum:

„Samfélagið þarf að ná áttum – leggja til atlögu gegn þeim vágestum sem ógna okkur. Það þolir ekkert heimili eða veikburða atvinnurekstur okurvextina til frambúðar eða þá holskeflu verðhækkana á vöru og þjónustu sem nú ríður yfir. Það er komið að þeim sem stýra verðlaginu að sýna ábyrgð. Það hafa þeir upp til hópa ekki gert á undanförnum árum, eða hvað varð um ávinninginn af lækkun virðisaukaskattsins á matvælum í fyrra? Var hann ekki háfaður af verslunareigendum  á sama hátt og gengisbreytingar hafa verið nýttar í þeirra þágu en ekki komið neytendum til góða. Á þessum málum verður nú að taka af festu og ábyrgð því eitt mega menn vita að okkar tilboð er ekki án skilyrða. Við viljum breyttar áherslur – ekki síst hjá stjórnvöldum,  markaðs- og peningahyggja verði látin víkja – að við komum að nýju að borði sem samfélag – lögð verði á hilluna áform um frekari einkavæðingu innan velferðarþjónustunnar og hætt verði að úthýsa láglaunahópum og koma fram við fólk eins og ómerkilegar stærðir  í bókhaldi sjúkrahúsanna. Víðar í þurfa stjórnendur að taka sér tak og temja sér önnur vinnubrögð. Deilur um löggæsluna á Suðurnesjum eru dæmi þar um. Þá þurfum við að heyra hvenær stjórnvöld ætli að framfylgja fyrirheitum um að bæta kjör umönnunarstétta og annarra hópa sem búa við óviðunandi kjör og aðstæður?"

Þá vék formaður BSRB að nýjum Endurhæfingasjóði sem nýlega hafi verið samið um í samningum á almennum markaði. Þar væri ýmsum spurnigum ósvarð:Fyrirhugaður Endurhæfingarsjóður byggir vissulega á félagslegum forsendum og markmiðin eru góð – að efla þá sem misst hafa starfsorku til sjálfshjálpar að nýju. En einmitt það er markmiðið með almannatryggingum og það er markmiðið með því endurhæfingarnetverki sem við höfum verið að koma á laggirnar á undanförnum árum og áratugum – fyrir alla. Þetta kerfi hefur hins vegar verið svívirðilega fjársvelt. Það þekkir starfsfólkkið á Grensásdeild Landspítalans og í heilbrigðiskerfinu. En þá ætti verkefnið að vera að auka fjárstreymið til þessara aðila, og hafna þeirri stefnu að því aðeins verði peningar af hendi látnir rakna ef starfsemin er einkavædd. Ætlar ríkisstjórnin Almanntryggingum rýrari hlut þegar farið verður að beina fjármagni inn í þennan nýja farveg Endurhæfingarsjóðs? Við þessu þurfa að fást svör.

Ögmundur sagðist hafa ákveðnar efasemdir um Endurhæfingarsjóðinn að með honum sé verið að "snúa til þess sem áður var, að réttindi sem nú tilheyra öllum verði að nýju vinnumarkaðstengd. Grundvallarbreytingar á velferðarkerfinu á ekki að gera umræðulítið eins og nú hefur gerst og hefur stundum gerst áður. Það kann ekki góðri lukku að stýra þegar umræðulítið er samið um grundvallarbreytingar sem munu ganga yfir allt samfélagið."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Úrskurður um gæsluvarðhald hefur verið staðfestur yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »
Frá Ísafirði. Úr myndasafni.

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Babaria, snyrtivörur á góðu verði.
Babaria er fjölbreytt vörulína sem hentar þörfum allra í fjölskyldunni. Þetta er...
20" barnareiðhjól til sölu
Til sölu 20" Mongoose Rockadille barnareiðhjól. Mjög vel með farið í toppstandi ...
HARÐVIÐUR TIL HÚSBYGGINGA
Harðviður til húsabygginga  Sjá nánar á...
JCB 3CX SUPER TRAKTORSGRAFA
Til sölu JCB 3CX SUPER Traktorsgrafa árg. 1996. Notuð 12000 stundir. Vél í g...
 
Námsstyrkir - bandalag kvenna í reykjavík

Námsstyrkir Bandalag kvenna í Reyk...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...
Lausar kennarastöður
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik- og gru...