Aldarafmæli embættis borgarstjóra

Ráðhús Reykjavíkur
Ráðhús Reykjavíkur mbl.is/Sverrir

Á morgun eru  liðin 100 ár frá því fyrsti borgarstjórinn var skipaður í Reykjavík. Fyrsti borgarstjórinn í Reykjavík var Páll Einarsson en embætti borgarstjóra var auglýst laust til umsóknar í Ingólfi 23. febrúar 1908.

Í auglýsingunni kom fram að embættinu „fylgdu” 4.500 kr. og „skrifstofufé” 1.500 kr. Um embættið sóttu þeir Knud Zimsen, bæjarfulltrúi og Páll Einarsson, sýslumaður og bæjarfógeti í Hafnarfirði. Á bæjarstjórnarfundi 7. maí 1908 var gengið til atkvæða og fékk Knud Zimsen þrjú atkvæði en Páll Einarsson var kjörinn borgarstjóri til 6 ára með 10 greiddum atkvæðum. Á þeim tíma voru bæjarbúar um 11.000 talsins.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að Páll hafi reynst afar farsæll borgarstjóri og í hans tíð var ráðist í margvíslegar stórframkvæmdir sem breyttu bæ í borg. Má þar nefna byggingu vatnsveitu, gasstöðvar, holræsa og hafnargerð. Páll kaus að láta af embætti 1914 er kjörtímabili hans lauk. Var embættið þá auglýst aftur og hlaut Knud Zimsen bæjarfulltrúi kosningu og var hann borgarstjóri í 18 ár eða til 1932.  
 
Á þessum hundrað árum hafa nítján einstaklingar gegnt embætti borgarstjóra, þrjár konur og sextán karlar.

 Hundrað ára afmælisins verður minnst með sögusýningunni „Kæri borgarstjóri” sem opnuð verður í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur þann 16. maí nk. Á sýningunni verður sambandi borgarbúa við borgarstjóra og borgina  gerð skil og bréf og önnur skjöl notuð til þess að spegla tíðarandann og þetta sérstaka samband íbúanna við borgina.

Listi yfir þá sem hafa gegnt embætti borgarstjóra í Reykjavík

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert