BÍ krefjast lengri frests
Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is
Óhætt er að fullyrða að frumvarpið um lögfestingu á matvæla- og fóðurlöggjöf ESB, sem Alþingi hefur nú til meðferðar, sé einn af viðamestu lagabálkum sem komið hafa til kasta þingsins að undanförnu. Frumvarpið, sem er um 60 blaðsíður, felur í sér innleiðingu fjölmargra Evrópureglugerða og hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis leitað umsagna nálægt 130 aðila við það. Fram hefur komið að fylgja þarf frumvarpinu eftir með setningu reglugerða um á fimmta tug efnisatriða.
Frestur til að skila umsögnum við frumvarpið rennur út í dag og blasir við að nefndarmanna sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar bíður ærið verkefni að fara yfir flóð umsagna og athugasemda. „Það verður hörkuvinna,“ segir Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður nefndarinnar. Fram hefur komið hörð gagnrýni á frumvarpið en að sögn Arnbjargar koma stærstu áhyggjurnar frá sláturleyfishöfum, afurðastöðvum og framleiðendum hvíta kjötsins, þ.e. kjúklinga- og svínabændum.
Bændasamtök Íslands hafa nú ákveðið að senda ekki inn umsögn við frumvarpið heldur fær þingnefndin væntanlega erindi í dag þar sem BÍ krefjast þess að fá lengri frest til að fara yfir frumvarpið og rökstyðja þá afstöðu með greinargerð til nefndarinnar.
„Við teljum ekki hægt að gefa ábyrga umsögn á svo skömmum tíma,“ segir Eiríkur Blöndal, framkvæmdastjóri BÍ. „Það er ekki einfalt mál að rekja sig eftir Evrópurétti, þetta tekur einfaldlega lengri tíma. Okkar afstaða er sú að við getum ekki fellt okkur við að [frumvarpið] verði samþykkt í vor, vegna þess að við þurfum lengri tíma til að gefa ábyrga umsögn.“
Veigamesta breytingin felst eins og fram hefur komið í að ekki verður lengur bannaður innflutningur á fersku kjöti. Markmið þess er þó allt annað en að auka viðskipti milli landa með matvörur og er fyrst og fremst að stuðla að auknu fæðuöryggi og treysta hagsmuni neytenda. Í umfjöllun Matvælastofnunar segir að rannsóknir á ferskum vörum nái ekki að útiloka að einhver mengun geti verið til staðar. Því sé nauðsynlegt að halda uppi stöðugu eftirliti og taka sýni til rannsókna.
Innlent »
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 19. febrúar 2009, Innlent Aðalatriði óbreytt en kröfurnar rýmkaðar
- Mánudagur, 5. maí 2008, Innlent Frestur til athugasemda ekki framlengdur
- Þriðjudagur, 10. febrúar 2009, Innlent Birgir aflétti leynd
- Mánudagur, 6. apríl 2009, Innlent Matvælafrumvarpið bíður
- Föstudagur, 14. nóvember 2008, Innlent Deilt um lög um fjármálafyrirtæki
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...




































