Friðrik og Mary kynntust íslenska hestinum
Friðrik krónprins Danmerkur og eiginkona hans Mary krónprinsessa heimsóttu Dalland í morgun og tóku Gunnar Dungal og Þórdís Alda Sigurðardóttir á móti gestum. Eftir stutta sýningu fóru hjónin í reiðtúr með hestum frá Dallandi og Íshestum, ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands og Dorrit Moussaieff forsetafrú. Íslenskir gæðingar voru sýndir, og meðal annars riðu knapar með bjórglas í hendi til að sýna hversu mjúkt og lipurt töltið er í íslenska hestinum.
Friðrik og Mary komu til Íslands í opinbera heimsókn í gær og dvelja hér þar til á fimmtudag. Friðrik prins sagði í gær að hann hlakkaði sérstaklega til þess að kynnast íslenska hestinum og að sá dagskrárliður væri einn af þeim sem stæðu upp úr í heimsókn þeirra hjóna. Friðrik og Mary létu vel af reiðtúrnum og sjá má að þau virtust skemmta sér vel.
Fjölbreytt dagskrá bíður hjónanna í dag og fara þau m.a að Nesjavöllum þar sem þeim verður kynnt starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur og á hádegi verður haldið til Þingvalla þar sem hjónin borða hádegisverð í boði forsætisráðherra.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 8. maí 2008, Innlent Íslandsheimsókn lokið
- Föstudagur, 2. maí 2008, Innlent Friðrik og Mary í opinbera heimsókn til Íslands
- Mánudagur, 5. maí 2008, Innlent Tignargestir á Íslandi
- Mánudagur, 5. maí 2008, Innlent Friðrik og Mary á Bessastöðum
- Þriðjudagur, 6. maí 2008, Innlent Svipast um á Þingvöllum
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































