Útskriftarverkefni um vatn og vatnsból
Átta útskriftarnemar í Verzlunarskóla Íslands hafa ný lokið verkefni í frumkvöðlafræðum. Verkefni nemendanna snýst um vatn og uppbyggingu vatnsbóla.
Í tilkynningu frá Hjálparstofnun kirkjunnar kemur fram að nemendur áttu að koma með hugmynd að fyrirtæki, fjármagna og setja fram viðskiptaáætlun og ársskýrslu.
„Við vorum lengi að velta fyrir okkur ýmsum hugmyndum en þegar upp kom hugmynd um að láta verkefnið snúast um vatn og uppbyggingu vatnsbóla var ekki aftur snúið” segir Íris Rún Karlsdóttir ein úr hópnum og bætir við: „Okkur fannst þetta spennandi vegna þess að vatn er ein af mikilvægustu auðlindum okkar Íslendinga, við skrúfum frá krananum og fáum okkur að drekka besta vatn í heimi án þess að hugsa sérstaklega um það hversu heppin við erum. Okkur fannst því skemmtilegt að vinna og útfæra verkefnið með það að markmiði að vekja fólk til umhugsunar um hvað vatn er mikilvæg auðlind og á sama tíma gefa til þeirra sem ekki eru eins heppin og við.”
„Okkur fannst mikilvægt að koma peningunum til skila á stað þar sem við erum viss um að hann eigi eftir að skipta máli, við höfðum heyrt um vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar í Malaví og höfðum því samband. Þar var okkur vel tekið og myndaðist gott samstarf” segir Anna María Axelsdóttir önnur úr hópnum. „Við byrjuðum á því að hafa samband við Ölgerðina sem tók okkur mjög vel og létu af hendi allar vatnsflöskurnar fyrir verkefnið endurgjaldslaust, sem auðvitað skipti sköpum til að hugmynd okkar yrði að veruleika,” að því er segir í fréttatilkynningu.
„Okkur fannst mikilvægt að koma peningunum til skila á stað þar sem við erum viss um að hann eigi eftir að skipta máli, við höfðum heyrt um vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar í Malaví og höfðum því samband. Þar var okkur vel tekið og myndaðist gott samstarf” segir Anna María Axelsdóttir önnur úr hópnum. „Við byrjuðum á því að hafa samband við Ölgerðina sem tók okkur mjög vel og létu af hendi allar vatnsflöskurnar fyrir verkefnið endurgjaldslaust, sem auðvitað skipti sköpum til að hugmynd okkar yrði að veruleika.”
Sandra Sif Magnúsdóttir bætir við: „Við vildum að flöskurnar væru merktar sérstaklega með okkar slagorði og nafni, Þorsti – svalaðu þínum þorsta… og annarra. Við tókum þá stefnu að selja flöskurnar til fyrirtækja til dreifingar til starfsmanna, í fundarherbergi og kaffistofur. Boltinn fór að rúlla þegar við fórum í fyrirtækin, nánast alls staðar var okkur mjög vel tekið. Þetta hefur verið heilmikil vinna, en vel þess virði þegar við hugsum til þeirra í Malaví sem fá betri aðgang að hreinu vatni,” samkvæmt tilkynningu.





































