Borgarstjóri áhrifalaus
„Ég held að borgarstjóri sé áhrifalaus og sé nú að átta sig á því,“ segir Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur. Hún bendir á að Ólafur F. Magnússon sé þekktur fyrir að fylgja sinni sannfæringu og því hljóti að vera erfitt fyrir hann að finna að ekki sé á hann hlustað innan meirihlutans í borgarstjórn.
„Hanna Birna Kristjánsdóttir segir að borgarstjórinn megi hafa sína skoðun á skipulagningu Vatnsmýrarinnar, en virðist samt sem áður gefa í skyn að skoðun hans skipti engu máli. Þetta er vísbending um að það sé ekki mikið mark á honum tekið,“ segir Stefanía.
Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir stöðu borgarstjóra erfiða. „Ólafur F. Magnússon segist hafa slitið Tjarnarkvartettinum á grundvelli málefnaágreinings. En honum virðist ekki ætla að farnast betur með sín stefnumál í nýjum meirihluta.“
Stefanía segir dapurlegt að borgarfulltrúar meirihlutans skuli ekki ganga í takt. Bæði sé ágreiningur innan borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna, og milli sjálfstæðismanna og borgarstjóra. „Ólafur á þó ekki mikla möguleika á samstarfi við aðra, og ég veit ekki hvort sjálfstæðismenn telja sig vera með marga aðra kosti í stöðunni. Svo lengi sem Ólafur lætur bjóða sér þetta, hangir meirihlutinn því líklega saman.“
Baldur segir málefni Vatnsmýrarinnar vera enn eitt málið sem kljúfi meirihlutann. „Það vekur óneitanlega athygli, að þrátt fyrir þessar stóru yfirlýsingar borgarstjóra um helgina, er Sjálfstæðisflokkurinn áfram að vinna með minnihlutanum að skipulagningu Vatnsmýrarinnar.
Maður veltir fyrir sér á hvaða grundvelli þessi meirrihluti starfar. Starfar hann á grundvelli málefna, eða starfar hann á grundvelli einhvers annars?“
Baldur segir ekki óeðlilegt að ætla að erfitt sé fyrir embættismenn borgarinnar að sinna sínum skyldum þessa dagana. „Þeir virðast hafa tvo herra; annars vegar borgarstjóra og hins vegar sjálfstæðismenn sem eru yfir flestum ráðum og nefndum borgarinnar.“
Í hnotskurn
Borgarstjóri gagnrýndi á laugardaginn vinningstillögu um skipulag Vatnsmýrarinnar. Aðrir borgarfulltrúar eru hlynntir tillögunni, sem unnið hefur verið eftir síðan í vor.Innlent »
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 5. maí 2008, Innlent Vilja umræðu um Vatnsmýrina
- Mánudagur, 5. maí 2008, Innlent Ólafur segist ekki hafa skipt um skoðun
- Laugardagur, 23. febrúar 2008, Innlent Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson víkur ekki
- Fimmtudagur, 17. júlí 2008, Innlent Segir minnihluta fara með ósannindi
- Mánudagur, 9. júní 2008, Innlent Ólafur: Breytir ekki samstarfinu
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...




































