HB Grandi fjárfestir fyrir 80-90 milljónir á Akranesi
Skrifað hefur verið undir samning um kaup á búnaði til að auka lausfrystingu í fiskiðjuveri HB Granda á Akranesi. Búnaðurinn kemur frá Skaganum hf. og þegar hann verður kominn í notkun aukast afköstin í lausfrystingunni úr 800 kg/klst í 2500 kg/klst. Þetta kemur fram á vef HB Granda.
Skrifað hefur verið undir samning um kaup á búnaði til að auka lausfrystingu í fiskiðjuveri HB Granda á Akranesi. Búnaðurinn kemur frá Skaganum hf. og þegar hann verður kominn í notkun aukast afköstin í lausfrystingunni úr 800 kg/klst í 2500 kg/klst. Reiknað er með því að heildarfjárfesting HB Granda vegna breytinganna á Akranesi muni nema 80-90 milljónum króna.
,,Afkastaaukningin þýðir að yfirvinna við lausfrystingu minnkar verulega, gæði afurða batna, og mögulegt verður að framleiða mikið magn ef þörf er,“ segir Torfi Þorsteinsson, forstöðumaður landvinnslu HB Granda. Akastaaukningin nýtist ekki síst ef mikið framboð er á innlendum fiskmörkuðum eða ef afli skipa félagsins er mikill.
Að sögn Torfa verður sumarleyfistíminn nýttur til að setja upp nýja lausfrystibúnaðinn. Hann segir að um leið verði tækifærið nýtt til að einfalda vinnsluferlið en hinn nýi búnaður er sniðinn að vinnslu á léttsöltuðum, lausfrystum flökum.
Vinnsla á að hefjast að nýju eftir sumarleyfi eða þann 18. ágúst nk. Þess má og geta að sprautusöltun á ufsa- og þorskflökum hófst í fiskiðjuveri HB Granda á Akranesi í gær með nýrri sprautusöltunarvél frá Fomaco og að sögn Torfa lofar hún góðu. Kostnaður vegna þessa búnaðar nemur hátt í 20 milljónum króna, samkvæmt vef HB Granda.
Samningur HB Granda og Skagans hf. er hins vegar að verðmæti 49 milljóna króna. Hluti af greiðslunni er fiskvinnslubúnaður á Vopnafirði og Akranesi sem ekki nýtist félaginu lengur. Að sögn Torfa er nú sömuleiðis unnið að lagfæringum á fiskiðjuverinu á Akranesi. Verið er að skipta um glugga og mála húsið að utan. Reiknað er með því að heildarfjárfesting HB Granda vegna breytinganna á Akranesi muni nema 80-90 milljónum króna.
Innlent »
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 9. maí 2008, Innlent Afköst í lausfrystingu aukast
- Fimmtudagur, 11. september 2008, Innlent Afköstin þrefölduð á Skaganum
- Fimmtudagur, 26. júní 2008, Innlent Sumarlokun hjá HB Granda á Akranesi og Vopnafirði
- Mánudagur, 29. desember 2008, Innlent Slátrun gengur vel
- Mánudagur, 21. janúar 2008, Innlent Grandi hættir landvinnslu botnfisks í núverandi mynd á Akranesi
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...




































