Amnesty leggst gegn notkun rafbyssa

Merki Amnesty International.

Merki Amnesty International.

Nokkur umræða hefur verið hér á landi að undanförnu vegna hugsanlegra heimilda til handa íslensku lögreglunni til að bera rafbyssur við störf sín. Í ljósi þeirra staðreynda sem fyrir liggja, bæði hættu á misnotkun, fjölda dauðsfalla þar sem rafbyssur koma við sögu og þeirri staðreynd að þær valda miklum sársauka sem getur jafnast á við pyndingar hefur Íslandsdeild Amnesty International lagt áherslu á að íslensk lögregluyfirvöld taki ekki upp rafbyssur hér á landi.

„Rafbyssur eru vopn sem skotið er úr pílum sem gefa frá sér 50.000 volta rafstuð. Vopnið er hannað í þeim tilgangi að  lama tímabundið líkama þess sem verður fyrir rafstuðsskotinu.

Úr rafbyssunum er skotið pílum sem festar eru við vír þannig að hægt er að hitta þann sem skotinu er beint að úr nokkurri fjarlægð. Pílurnar gefa svo frá sér rafstuð þegar þær komast í snertingu við húð eða klæðnað þess sem skotið er á.

Rafbyssur voru fyrst kynntar af Taser International árið 1970. Notkun þeirra hefur aukist mikið á síðustu árum og fram hafa komið nýjar  og öflugari útgáfur af þeim eins og M26 og X26 rafbyssur. 

Notkun rafbyssa er mjög útbreidd í Bandaríkjunum og á síðustu árum hefur lögreglan í Kanada aukið mjög beitingu þeirra. Um heim allan eru æ fleiri lögregluembætti sem heimila notkun rafbyssa sem valkost við hefðbundin skotvopn.  Á Íslandi hefur hinn almenni lögreglumaður ekki borið skotvopn við störf sín," að því er segir í tilkynningu.

Afleiðingar af beitingu rafbyssa

Rafbyssur eru kynntar sem öruggari valkostur við skotvopn þegar lögreglan á í höggi við hættulega einstaklinga. Þrátt fyrir það hefur komið í ljós að í reynd er rafbyssum er ekki einungis beitt gegn einstaklingum sem lögreglan telur að hætta stafi af, heldur er þeim í síauknum mæli beitt sem tæki gegn fólki sem engin raunveruleg hætta stafar af. Rafbyssum er oft beitt við aðstæður þar sem hvorki beiting vopna og jafnvel ekki kylfa væri réttlætanleg, að því er segir í tilkynningu frá Amnesty.

„Það hafa komið fram fjölmargar upplýsingar um  að lögreglumenn beiti rafbyssum á óviðeigandi og hrottafenginn hátt.  Amnesty International hefur mikla áhyggjur af því að þegar saman koma lögregluaðferðir þar sem piparúða, rafbyssum og fangabrögðum er beitt geti það leitt til alvarlegs líkamlegs álags þess sem fyrir verður og mikillar hættu á heilsutjóni og jafnvel dauða.

Frá því í júní árið 2001 hafa a.m.k. 290 einstaklingar látist í Bandaríkjunum og Kanada eftir að hafa fengið í sig rafstuð úr M26 og X26 rafbyssum, í sumum tilfellanna var beitt aðferðum eins og þeim sem lýst er hér að ofan. Fjöldi dauðsfalla eykst með ári hverju. Þó ekki sé hægt að halda því fram með óyggjandi hætti að allir þessir einstaklingar hafi látist eingöngu vegna rafstuðsins er ljóst að fjöldi dauðsfalla þar sem rafbyssur koma við sögu er ískyggilega hár og skortur er á rannsóknum á áhrifum rafstuðsins sem byssurnar valda á einstaklinga sem t.d. eru undir áhrifum eiturlyfja, eiga við hjartasjúkdóma að stríða eða önnur heilsufarsvandamál.

Rannsóknir Amnesty International hafa sýnt að í mörgum tilfellum hefur beiting rafbyssa verið í bága við alþjóðlegar reglur sem kveða á um að lögreglumenn grípi einungis til valdbeitingar sem síðasta úrræðis þegar allir aðrir  valkostir hafa verið reyndir, valdbeiting lögreglu skal ætíð vera í samræmi við þá ógn sem er til staðar.  Samtökin hafa bent á að notkun rafbyssa við aðstæður þar sem ekki er um raunverulega ógn að ræða brjóti í bága við Alþjóðasamning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum. Eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna með framfylgd alþjóðasamnings gegn pyndingum hefur lýst yfir áhyggjum af beitingu rafbyssa m.a. í umsögn sinni um framfylgd Portúgal við samninginn. Nefndin lýsti yfir áhyggjum af því að notkun Taser X26 vopna, fylgi mikill sársauki, sem jafnast á við pyndingar, og í sumum tilfellum gæti leitt til dauða.  Einnig hafa eftirlitsnefndir Sameinuðu þjóðanna með framfylgd Alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi fjallað á sama hátt um beitingu rafbyssa bæði í Kanada og Bandaríkjunum. Sérstök rannsóknanefnd bandaríska dómsmálaráðuneytisins rannsakar nú meira en 100 dauðsföll þar sem lögreglan hefur beitt rafbyssum eða öðrum rafvopnum, gert er ráð fyrir að nefndin skili niðurstöðum síðar á þessu ári.

Amnesty International hefur beitt sér gegn sölu og dreifingu vopna sem hönnuð eru til að valda sársauka, þar á meðal rafbyssa, rafbelta, rafkylfa og fleiri tækja og tóla sem framleidd eru og valda þeim sem fyrir verður miklum sársauka. „Sársaukaiðnaðurinn" er vaxandi iðnaður og eru þessi tól oft seld til landa þar sem þeim er beitt m.a. við pyndingar á föngum," að því er segir í tilkynningu frá Amnesty.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Loðnuhrognavinnsla hjá HB Granda Akranesi

Styttist í hrognafrystingu

20:02 Góður kraftur hefur verið í loðnuveiðum síðustu tvær vikur og nú styttist í að hrognafyllingin í loðnunni og þroski hrognanna gefi tilefni til að hægt verði að hefja hrognatöku og –frystingu. Meira »

Skafrenningur á Austurlandi

19:03 Hríð á flestum fjallvegum á Vestfjörðum og Norðurlandi. Gera má ráð fyrir þéttri ofankomu og skafrenningi austanlands fram á nótt s.s. á Oddsskarði og Fjarðarheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Meira »

Fundaði með fulltrúum sveitarfélaga

Jóhanna Sigurðardóttir
19:01 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með fulltrúum forsvarsmanna landhlutasamtaka sveitarfélaga. Ræddi hún á fundinum um hvaða kostir eru í stöðunni varðandi verkefni á landsbyggðinni. Meira »

Vilja lækka olíugjald

18:32 Þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggja í dag fram frumvarp til laga þar sem lagt er til að olíugjald verði lækkað umtalsvert.  Meira »

Ósáttur við að vera þjófkenndur

Frá Landmannalaugum - mynd úr safni
18:17 Guðmundur Gústafsson, einn þeirra sem voru í hópi jeppamanna í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum um helgina, er afar ósáttur við að hópurinn sé þjófkenndur en gps-staðsetningartæki var stolið í skálunum um helgina. Meira »

Leitar hjálpar vegna Aratúns-dóms

Aratúnið Málið spratt upp eftir skrif um Aratúnsfjölskylduna á bloggsíðu.
18:33 „Þetta er klárlega prófmál og mun hafa áhrif á önnur mál í framtíðinni þar sem einhver er ósáttur við ummæli á netinu," segir Andrés Helgi Valgarðsson, sem tapaði í vetur meiðyrðamáli vegna s.k. Aratúnsmáls. Andrés hyggst áfrýja til Hæstaréttar en ræður illa við málskostnaðinn og leitar eftir aðstoð Meira »

Unglingspilts enn leitað

Guðmundur Árnason.
18:19 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar lýsingu eftir Guðmundi Árnasyni, sem hvarf er hann var á ferð í Kópavogi þann 17. febrúar sl. Meira »

Fær frest til þriðjudags

Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
17:44 Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur samþykkt að veita Gunnari Andersen, forstjóra FME, lengri frest til þess að andmæla fyrirhugaðri uppsögn. Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður FME, segir að Gunnar fái frest til klukkan 16 næstkomandi þriðjudags. Meira »

Verslunarstjóri dæmdur fyrir umboðssvik

BYKO.
16:37 Hæstiréttur dæmdi í dag fyrrverandi verslunarstjóra BYKO á Selfossi í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að umboðssvik. Maðurinn var talinn hafa komið því til leiðar að fyrirtækið 5x fékk afhentar vörur frá versluninni árið 2007 án þess að staðgreiða þær. Meira »

Leiga í félagslegu húsnæði hækkaði um 28%

16:32 Verð á húsaleigu fyrir félagslegar íbúðir hækkaði um 28,6% á tímabilinu 2007 til 2011. 14.055 fengu húsaleigubætur á síðasta ári og 3.756 fengu sérstakar húsaleigubætur. Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar alþingismanns. Meira »

„Enginn greiði gerður með þessu klúðri“

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
16:37 „Það er öllum að verða augljóst að málsmeðferð þessa máls er klúður,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag um afgreiðslu Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Lýsa eftir ræningja

Spilakassar.
16:30 Lögreglan á Akureyri óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á manni sem framdi rán í Fjölumboðinu við Geislagötu á Akureyri í hádeginu í dag. Um er að ræða spilastað Gullnámunnar. Maðurinn komst af vettvangi með eitthvað af fjármunum úr sjóðsvél staðarins. Meira »

Svartir sauðir á hálendinu

Landmannalaugar
16:27 Stjórn Ferðafélags Íslands íhugar að loka öllum skálum félagsins yfir vetrartímann vegna slæmrar umgengni í þeim. Um liðna helgi voru þrír hópar í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum og var lítill svefnfriður í skálanum vegna skrílsláta eins hópsins. Meira »

Vilja starfshóp um póstverslun

Íslandspóstur.
16:03 Ellefu þingmenn úr fjórum flokkum hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fela forsætisráðherra að setja á fót starfshóp sem athugi þróun og regluverk í póstverslun hér og erlendis og geri tillögur um lagabreytingar og aðrar ráðstafanir til að skapa póstverslun viðeigandi samkeppnisstöðu. Meira »

Tíðinda að vænta innan tíu daga

Huang Nubo
15:49 „Ég vona að við munum hafa einhver tíðindi innan tíu daga,“ segir Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, spurður um mögulegar fjárfestingar kínverska fjárfestisins Huang Nubo á Norðausturlandi. Hann bætir við að rík áhersla sé lögð á að sem mest sátt náist um málið. Meira »

Mæling á PSA ekki áreiðanleg

Krabbameinsrannsóknir.
16:16 Mæling á PSA-mótefni í blóði gefur ekki nægilega áreiðanlegar upplýsingar til að hægt sé að mæla með aðferðinni til skimunar eftir krabbameini í blöðruhálskirtli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landlækni. Meira »

Icesave hefði sett Ísland á hausinn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
16:00 Formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlausson, sagði á Alþingi í dag að skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um afföll íbúðarlána og kostnað við niðurfærslu lána staðfesti það, væru forsendur hennar réttar, að ef Icesave-samningarnir sem ríkisstjórnin hefði reynt að koma í gegn hefðu verið samþykktir hefði það leitt til gjaldþrots íslenska ríkisins. Meira »

Ítarlegar upplýsingar um húsaleiguverð

15:46 Þjóðskrá Íslands birtir í fyrsta sinn á morgun upplýsingar um húsaleigu eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu. Um samstarfsverkefni Þjóðskrár og Íbúðalánasjóðs er að ræða en sjóðurinn á 700 leiguíbúðir. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Café Mílanó leitar að ungum listamönnum..
Á Café Mílanó geta ungir og efnilegir listamenn haldið sýningar.Áhugasamir hafi ...
MMC L200 DOUBLE CAB
Mmc L200 Double Cab GLS 4wd Nýskr. 5/2005, ekinn 116 þ. km, d...
4 stólar til sölu - mjög gott verð !
Þessir flottu stólar eru til sölu. 5.000 kr. stk. Upplýsingar í s. 663-5892....
ALLT MILLI HIMINS OG JARÐAR !!!!!!!!!!
NOTAÐ&NÝTT er ný verslun á Skemmuvegi 6 á bak við BYKO. Mikið úrval af fallegum ...
 
Bækur til sölu

Bækur til sölu Jarðatal á Íslandi 1847 ...
Hjálpræðisherfinn samkoma
Félagsstarf
Kaffi Amen,föstudagur kl. 21Lifan...
Stúkan glitnir
Félagsstarf
l GLITNIR 6012022219 III ...
Sýslumaðurinn í vestmannaeyjum - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....