Íslandsheimsókn lokið
Heimsókn Friðriks, krónprins Danmerkur, og eiginkonu hans, Maríu krónprinsessu, lauk í dag en þau komu til landsins mánudaginn 5. maí í boði forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, og Dorrit Moussaieff forsetafrúar.
Þau heimsóttu Bessastaði á komudeginum og snæddu hádegisverð þar í boði forsetahjónanna. Þá heimsóttu þau Áslandsskóla í Hafnarfirði þar sem kennarar og nemendur tóku á móti þeim og kynntu dönskukennslu og annað starf í skólanum.
Á þriðjudeginum heimsóttu þau m.a. Dalland og fóru hjónin í reiðtúr ásamt forsetahjónunum. Þar voru íslenskir gæðingar sýndir og meðal annars riðu knapar með bjórglas í hendi til að sýna hversu mjúkt og lipurt töltið er í íslenska hestinum. Krónprinshjónin snæddu svo hádegisverð á Þingvöllum í boði Geirs H. Haarde forsætisráðherra.
Á miðvikudaginn var haldið til Stykkishólms og heimsóttu krónprinshjónin m.a. grunnskólann þar og Norska húsið. Deginum lauk með siglingu um Breiðafjörð.
Í morgun heimsóttu þau Íslenska erfðagreiningu þar sem starfsemin var kynnt fyrir þeim. Þau enduðu svo dvöl sína á að heimsækja danska sendiráðið. Almennt virtust þau Friðrik og María vera ánægð með heimsókn sína og vel lá á þeim þegar þau stigu upp í vél sína á Reykjavíkurflugvelli.
Innlent »
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 5. maí 2008, Innlent Tignargestir á Íslandi
- Mánudagur, 5. maí 2008, Innlent Friðrik og Mary á Bessastöðum
- Föstudagur, 2. maí 2008, Innlent Friðrik og Mary í opinbera heimsókn til Íslands
- Þriðjudagur, 6. maí 2008, Innlent Friðrik og Mary fóru á hestbak
- Miðvikudagur, 30. apríl 2008, Innlent Friðrik og Mary koma 5. maí
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































