Jakob láti af setu í ráðum borgarinnar
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri mun leggja það til við Jakob Frímann Magnússon, nýráðinn framkvæmdastjóra miðborgar, að hann segi sig úr bæði hverfisráði miðborgar og ferða- og menningarmálaráði. Þetta segir hann í samtali við Morgunblaðið, en Ólafur var í gær gagnrýndur vegna umdeildrar ráðningar Jakobs Frímanns. Rætt var um málið í borgarráði og birtust bæði yfirlýsingar úr röðum minnihlutans og frá borgarstjóra seinni partinn í gær. Spurði minnihlutinn m.a. út í ráðningarferlið, launaupphæðir og hvernig hið nýja starf samræmist setu Jakobs í ráðum á vegum borgarinnar, en starfið var hvorki auglýst né um það fjallað í borgarráði.
Fram kom hjá Ólafi í gær að föst mánaðarlaun Jakobs eru kr. 474.214 og föst yfirvinna kr. 236.286 eða alls 710.600 krónur. Tók hann fram að þetta væri sama upphæð og framreiknuð laun miðborgarstjóra R-listans á árinu 2005. Borgarstjórinn hafnar því alfarið að hið nýja embætti hafi verið sérsniðið fyrir Jakob Frímann. „Fátt sannar það betur en sú staðreynd að rætt var við fleiri aðila áður en til ráðningar hans kom, þ. á m. Kristínu Einarsdóttur, fyrrverandi miðborgarstjóra.“
Aðspurður hvers vegna staða framkvæmdastjórans hafi ekki verið auglýst segir Ólafur ráðninguna innan marka reglna borgarinnar, enda aðeins til tólf mánaða í mesta lagi. Mikið hafi legið á að hefja viðkomandi verkefni. Hann kveðst ekki hafa á takteinum hversu mikið þetta hefði tafist með auglýsingarferli og umfjöllun í borgarráði, en spurður hvaða verkefni framkvæmdastjórans það væru sem þyldu enga bið segir Ólafur: „Að samþætta vinnu og aðkomu starfsfólks að þeim gríðarlega miklu verkefnum sem blasa við í miðborginni, allt frá hreinsun, umhirðu, eftirliti og eflingu mannlífs til skipulagsvinnu. [...] Ég hef lagt feiknalega áherslu á endurreisn miðbæjarins á öllum Laugavegi og niður í Kvosina. Ég tel að ég hafi fundið einstakling sem ég treysti til að knýja verkefnið sem hraðast áfram,“ segir Ólafur.
Innlent »
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 9. maí 2008, Innlent Fagnar ráðningu Jakobs Frímanns
- Föstudagur, 9. maí 2008, Innlent Ögrandi og spennandi verkefni
- Fimmtudagur, 8. maí 2008, Innlent Spurt um ráðningu Jakobs Frímanns
- Miðvikudagur, 7. maí 2008, Innlent Gengið frá ráðningu Jakobs Frímanns
- Fimmtudagur, 8. maí 2008, Innlent „Ráðning í samræmi við reglur Reykjavíkurborgar"
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































