Leggja til endurskoðun á stjórnun Vinnumálastofnunar

Ríkisendurskoðun telur að endurskoða þurfi innra skipulag og stjórnun Vinnumálastofnunar, gera árangursstjórnunarsamning við hana og móta henni faglega stefnu. Þá þarf að einfalda stjórnsýslu þeirra sjóða sem stofnunin hefur umsýslu með og er í því samhengi lagt til að efnt verði til nýrrar stofnunar velferðarmála. Þá er hvatt til að kannað verði með formlegum hætti hvort rétt sé að sameina Vinnumálastofnun og Vinnueftirlit ríkisins í eina öfluga stofnun á sviði vinnumarkaðsmála.

Í stjórnsýsluúttekt sinni á Vinnumálastofnun bendir Ríkisendurskoðun á að breyta þurfi innri stjórnsýslu stofnunarinnar svo að hún endurspegli þau verkefni sem hún sinnir og lagalegar áherslur.

Þá valdi núverandi stjórnskipulag meðal annars því að ábyrgð sé ekki nægjanlega skýr og er lagt til að félags- og tryggingamálaráðuneytið meti hvort rétt sé að stofnunin hafi sérstaka stjórn. Einnig eru gerðar alvarlegar athugasemdir við að ráðuneytið hefur hvorki gert árangursstjórnunarsamning við Vinnumálastofnun né sett reglugerð um vinnumarkaðsaðgerðir eins og því ber. Brýnt er úr þessu verði bætt. Þá er nauðsynlegt að stofnuninni verði mótuð fagleg stefna eins og stjórn hennar hefði átt að eiga frumkvæði að.

 Núverandi stjórnsýsla sjóða óþarflega flókin

Í úttekt Ríkisendurskoðunar kemur fram að núverandi stjórnsýsla þeirra sjóða sem Vinnumálastofnun hefur umsjón með er óþarflega flókin og að einföldun hennar gæti bætt þjónustu við bótaþega, aukið skilvirkni og lækkað umsýslukostnað. Lagt er til að stjórnir sjóðanna verði lagðar niður og að umsjón Vinnumálastofnunar með þeim verði flutt til nýrrar stofnunar velferðarmála sem sinni allri umsýslu lífeyris-, sjúkra-, slysa- og vinnumarkaðstengdra trygginga og bóta. Breytt verkaskipting félagsmála- og heilbrigðisráðuneyta gefur einnig sérstakt tilefni til að efnt verði til slíkrar stofnunar.

 Ríkisendurskoðun telur að um leið og umsýsla ríkisins með tryggingum og bótum verði sameinuð eigi að sameina greiðslukerfi ríkisins í eitt og veita þangað upplýsingum úr fjölmörgum kerfum sem reikna og ákvarða bætur. Með því móti gefist einstaklingum kostur á einu samræmdu greiðsluyfirliti um bætur og aðrar greiðslur. Þetta muni því bæta þjónustu við þá.

 Að lokum leggur Ríkisendurskoðun til að kannað verði með formlegum hætti að sameina Vinnumálastofnun og Vinnueftirlit ríkisins í eina öfluga stofnun á sviði vinnumarkaðsmála. Hvort sem af slíku yrði eða ekki gæti að minnsta kosti verið hagkvæmt að sameina þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar og umdæmisskrifstofur Vinnueftirlitsins í eina þjónustuskrifstofu vinnumarkaðsmála á hverjum stað.

Verði hins vegar af sameiningu stofnananna tveggja mætti samnýta samráðsvettvang málaflokkanna sem þær sinna: Vinnumarkaðsaðgerða og vinnuverndar. Lagt er til að skoðaðir verði í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins kostir og gallar þess að stofna eitt fagráð vinnumála í stað stjórna stofnananna. Slíkt ráð mætti einnig virkja sem öflugan samráðsvettvang fyrir vinnumarkaðsmál.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar í heild 

 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Úrskurður um gæsluvarðhald hefur verið staðfestur yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »
Frá Ísafirði. Úr myndasafni.

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu starex 2.5 Dísel
Er með Hyunday H-1 starex 4x4 skráður 02.2000 skráður 7manna ekin 191 þús. Er ný...
Bíll til sölu
Er með flottan Subaru Impreza,árgerð 2007, hann er ekinn 174 km.og hann kostar 1...
TOYOTA COROLLA H/B
Toyota Corolla H/B Sol, 01/2004, ekinn 84 þús. Ssk., vindskeið,...
FÖNDURSETT Í ÚRVALI
Föndursett í úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid...
 
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...