Taser International gerir athugasemd við Amnesty


Vegna ummæla formanns Íslandsdeildar Amnesty International í á mbl.is í gær, vill Taser International koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri.

„Þrátt fyrir að engin valdbeiting sé hættulaus, þar á meðal með Taser tækjum, hafa sérfræðingar á sviði læknisfræði og nýlegar rannsóknarskýrslur frá stjórnvöldum í Kanada, Bretlandi og Bandaríkjunum, leitt í ljós að Taser tæki eru með öruggustu valdbeitingartækjum sem notuð eru til að yfirbuga ofbeldisfulla  einstaklinga sem myndu að öðrum kosti skaða lögreglumenn, saklausa borgara eða sjálfa sig.

Að mati lækna og sérfræðinga á sviði löggæslu eru Taser tækin, með réttri notkun öflugustu og áhrifaríkustu valdbeitingartæki sem löggæslustofnunum stendur til boða við að ná stjórn á ofbeldisfullum aðstæðum sem þar sem heilsu lögreglumanna, saklausra borgara og brotamanna sjálfra er stefnt í hættu.

Til eru fleiri en 120 rannsóknir á öryggi Taser tækja og áhrifa þeirra á líkamann. Um það bil 80 prósent þeirra eru óháðar og á engan hátt tengdar Taser International. Þeirra á meðal eru nokkrar nýlegar sem fjármagnaðar voru með styrkjum frá bandaríska dómsmálaráðuneytinu.

Niðurstöður þeirra rannsókna sýna fram á að Taser tækin eru örugg valdbeitingartæki sem framleiða háa spennu og lágan straum sem getur ekki valdið dauða. Nýjustu rannsóknirnar má nálgast á vefsíðu Taser International www.taser.com undir liðnum Research.

Amnesty International horfir viljandi framhjá þessum mikla fjölda óháðra rannsókna en kýs frekar að vísa í blaðafyrirsagnir æsifréttablaða sem samtökin leggja svo á borð fyrir almenning sem rannsóknarvinnu.

Bæði Amnesty og Taser International voru stofnuð í göfugum tilgangi. Það vekur þó ugg að Amnesty International skuli halda uppi óvísindalegum óhróðri og dylgjum þegar samtökunum er fullkunnugt um þá staðreynd að í málum þar sem dauðsföll hafa orðið við handtöku og Taser tæki hafa komið við sögu, hafa réttarmeinafræðingar nær undantekningalaust útilokað Taser tækin sem orsakavald. Taser International mun halda áfram að fræða almenning með vísindalegum staðreyndum og um leið eyða ranghugmyndum og ýkjum Amnesty International um tækjabúnaðinn. Tilgangur Taser International er og verður að bjarga mannslífum.

Í nýlegri rannsókn, sem fjármögnuð var af bandaríska dómsmálaráðuneytinu og framkvæmd af vísindamönnum við læknadeild Wake Forest háskólann í Bandaríkjunum, var niðurstaðan sú að Taser valdbeitingartækin eru örugg og valda í undantekningartilfellum mildum áverkum. Vísindamennirnir skoðuðu mál 962 einstaklinga sem yfirbugaðir höfðu verið með Taser frá júlí 2005 til júní 2007. Af þessum 962 þurftu 3 (0.3%) að leita aðstoðar lækna vegna falláverka. Þar sem Taser tæki hafa verið tekin í notkun hefur dregið úr slysum á lögreglumönnum og hinum handteknu um allt að 80 prósent," að því er segir í yfirlýsingu frá Taser.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Ducati sport classic 1000
Til sölu Ducati sport classic, árg. 2006 ekið 2500 km. Tveggja cyl. loftkælt. V...
PLASTMÓDEL
Plastmódel í miklu úrvali. Tómstundahúsið...
Til leigu
Til leigu í sumar 3 herbergja íbúð í Grafarvogi. 8940458...
SKODA FABIA COMFORT
Skoda Fabia Comfort . Nýskr. 5/2000, ekinn 122 þ.km, bensín,...
 
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...