Mikið að gera hjá björgunarsveitum á Vestfjörðum í nótt
mbl.is/RAX
Í nógu var að snúast hjá björgunarsveitum á Vestfjörðum í nótt að sögn lögreglunnar á Ísafirði. Ófært var um Steingrímsfjarðarheiði og var hún lokuð í nótt en þrátt fyrir lokunina fóru nokkrir á heiðina og lentu í vandræðum vegna blindrar færðar og þurftu á aðstoð að halda.
Að sögn lögreglu festust margir sem voru á leið vestur í Hólmavík og var öll gistiaðstaða í bænum uppurin, og opnað var félagsheimili til þess að veita fólki gistingu.
Þá barst lögreglu tilkynning klukkan hálf eitt í nótt um þýskt par sem festist á Ennishálsi, heiðinni milli Hólmavíkur og Brúar. Að sögn lögreglu voru þau á illa búnum bílaleigubíl en fengu aðstoð björgunarsveitar við að komast niður af heiðinni.
Björgunarsveitin Lómfell á Barðaströnd var ræst út í nótt við að aðstoða flutningabíla á Klettshálsi, sem lentu þar í blindu og skafrenningi. Þá barst lögreglu tilkynning um klukkan 2:30 í nótt að óttast væri um fjórar bifreiðar sem væru á leið frá Flókalundi til Ísafjarðar. Ekki hafði heyrst frá ökumönnum þeirra í langan tíma og var björgunarsveitin Dýri frá Þingeyri ræst út. Þeir fundu bílana um klukkustund síðar við Hrafnseyri en þeir voru þá komnir niður af Dynjandaheiði. Höfðu þeir lent í vandræðum á heiðinni þar sem færð var blind og mikill skafrenningur.
Innlent »
Laugardagur, 11.2.2012
- „Ég er í skýjunum“
- „Mjög sérstök tilfinning“
- Jónsi og Greta til Bakú
- Úrslitakeppnin hafin í Hörpu
- Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka
- Fjör á 112-deginum á Húsavík
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðaþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 14. mars 2009, Innlent Unnið að því að moka Hellisheiði
- Sunnudagur, 27. janúar 2008, Innlent Hellisheiði lokuð
- Föstudagur, 8. maí 2009, Innlent Ekkert ferðaverður í Þingeyjarsveit
- Þriðjudagur, 21. október 2008, Innlent Ófært á Grenivík
- Miðvikudagur, 17. september 2008, Innlent Vegur í sundur í Ísafjarðardjúpi
-
Fólk víða að minnast Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði ōðruvísi biskup
-
Lík Houston flutt af hótelinu
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað




































