Rotþró stolið og sett niður í nágrenninu
Fyrir nokkru var rotþró stolið þar sem hún stóð við sumarbústað í Ásgarðslandi í Grímsnesi. Upplýsingar bárust um að líklega væri hana að finna niðurgrafna við sumarbústað ekki langt þar frá. Lögreglan á Selfossi fór á staðinn og lét grafa upp rotþróna og lagði hald á hana.
Í framhaldi af því var maður handtekinn sem grunaður var um þjófnaðinn. Sá staðhæfði að hafa keypt rotþrónna og framvísaði kvittun því til staðfestingar. Við nánari skoðun kom í ljós að kvittunin var fölsuð. Maðurinn viðurkenndi við yfirheyrslu að hafa falsað kvittunina en hélt sig fast við að hafa keypt rotþrónna. Rannsókn málsins er á lokastigi og verður sent til saksóknara.
Í dagbók lögreglunnar á Selfossi kemur fram að hvítasunnuhelgin hafi verið róleg hjá lögreglunni í Árnessýslu. Að vísu gistu tveir karlmenn fangageymslur í nótt vegna ölvunar og óláta á Selfossi. Þeir munu fá kærur fyrir áfengislagabrot og brot á lögreglusamþykkt.
Í gær, hvítasunnudag, brenndist erlendur ferðamaður á fótum er hann var staddur við Hverahlíð á Hellisheiði. Hann var fluttur á slysadeild Landspítala í Fossvogi. Maðurinn hafði verið að ljósmynda þegar torfa sem hann stóð á seig og fætur mannsins lentu í heitum leir.
Pakka sem sendur var með sérleyfisbíl frá Kirkjubæjarklaustri að Selfossi var stolið eftir að bílstjóri afhenti hann í afgreiðslu sérleyfisins á N1 við Austurveg á Selfossi. Pakkinn innihélt vatnskassa í mótorkrosshjól. Þeir sem veitt geta upplýsingar um málið eru beðnir að hafa samband við lögreglu í síma 480 1010.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Bjarnason Vatnskassi og rotþró???? -
Heimir L Fjeldsted Hreinræktuð skítalykt. -
Gísli Foster Hjartarson Ómar Jóh kemst á klóið -
Linda litla Hverju verður stolið næst ?? -
Brjánn Guðjónsson Salernisstuldur í Grímsnesi -
Helgi Már Barðason Stóra rotþróarmálið
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 28. apríl 2008, Innlent Stálu rotþró
- Laugardagur, 25. apríl 2009, Innlent 79 ára játar íkveikju
- Fimmtudagur, 27. nóvember 2008, Innlent Innbrotsþjófar á ferð í Árnessýslu
- Mánudagur, 4. maí 2009, Innlent Níu innbrot í umdæmi lögreglunnar á Selfossi
- Mánudagur, 16. mars 2009, Innlent Lýst eftir bifreið í tengslum við innbrot
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































