Hveragerði mótmælir áformum um Bitruvirkjun
mbl.is/Rax
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti samhljóða á fundi í morgun bókun, þar sem mótmælt er harðlega öllum áformum um virkjun við Bitru. Segir í bókuninni að einsýnt sé að með þeim áformum sé verið að fórna meiri hagsmunum fyrir minni.
„Við skorum á sveitarfélagið Ölfus að hætta við þá breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins sem gerir ráð fyrir virkjun á þessu svæði enda yrðu neikvæð áhrif virkjunar og tengdra framkvæmda afar mikil á þessu verðmæta útivistarsvæði. Óumdeilt er að áhrifin verða einnig mikil á lífsgæði íbúa í næsta nágrenni virkjunarinnar, hljóta hagsmunir Hvergerðinga að vega þar þyngst. Bæjarstjórn vill í þessu sambandi enn og aftur minna á að borholur vegna Bitruvirkjunar verða staðsettar í um 4 kílómetra fjarlægð frá byggðinni í Hveragerði," segir m.a. í bókun bæjarstjórnarinnar, sem einnig gerir verulegar athugasemdir við framgöngu Sveitarfélagsins Ölfuss í málinu.
Þá segir í bókuninni, að Orkuveita Reykjavíkur hafi sýnt það og sannað í gegnum tíðina að fyrirtækið og forverar þess hafi haft umhverfismál að leiðarljósi. „Við trúum því að á því verði ekki breyting nú. Bæjarstjórn Hveragerðis treystir því að stjórn og stjórnendur OR sjái að sér í þessu máli og láti náttúruna og íbúa Hveragerðisbæjar njóta vafans og hætti við öll áform um virkjanir á Bitrusvæðinu og í næsta nágrenni þess," segir í bókuninni.
Segjast forsvarsmenn bæjarfélagsins áskilja sér allan rétt í framhaldinu, verði af virkjun við Bitru, þrátt fyrir eindregin mótmæli Hveragerðisbæjar.
Bloggað um fréttina
-
Jón Finnbogason Ská djúpborum þetta frá Hótel Örk -
Dofri Hermannsson Síðasti dagur í dag...
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 13. maí 2008, Innlent NSS leggjast gegn áformum um Bitruvirkjun
- Mánudagur, 19. nóvember 2007, Innlent Óábyrgt að halda áfram með Bitruvirkjun
- Þriðjudagur, 3. mars 2009, Innlent Tvöföldun Suðurlandsvegar er forgangsmál
- Fimmtudagur, 22. maí 2008, Innlent Fögnuður stjórnarmanna á móti hagsmunum OR
- Miðvikudagur, 19. mars 2008, Innlent Hvergerðingar vilja strætó austur fyrir fjall
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































