Biðlistar styttast verulega
Listinn yfir aldraða sem bíða á Landspítalanum eftir varanlegri vistun á hjúkrunarheimili tæmist nánast með opnun 18 rúma deildar í dag á Landakoti. Í stað þess að bíða á Landspítalanum eftir búsetu á hjúkrunarheimili bíða nú sjúklingarnir á Landakoti.
Í kjölfar útboðs var samið við dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund um rekstur deildarinnar sem þurft hafði að loka vegna manneklu. Starfsmenn deildarinnar verða um 25. Vegna breytinga á Grund koma nokkrir starfsmenn þaðan auk þess sem ráðnir hafa verið nýir, að sögn Júlíusar Rafnssonar, framkvæmdastjóra Grundar.
Í september síðastliðnum biðu um 90 sjúklingar á Landspítalanum eftir plássi á hjúkrunarheimili. Með nýju úthlutunarkerfi, þar sem þeir sem eru í mestri þörf eru teknir fyrst, hefur tekist að fækka á biðlistanum. „Áður gátu hjúkrunarheimilin valið hver yrði tekinn næst. Nú gengur þörf sjúklinganna fyrir og þess vegna fækkar á spítalanum,“ segir Björn Zoëga, starfandi forstjóri Landspítalans.
Hann segir að til þess að Landspítalinn missi ekki starfsmenn yfir til einkarekinna deilda eins og þeirrar sem Grund rekur þurfi að greiða þeim sambærileg laun við þau sem greidd eru í einkarekstri. „Það segir sig sjálft þegar svona stendur á. Við þurfum einnig að byggja upp þannig starfsmannastefnu að einstaklingarnir fái að njóta sín betur en hingað til. Ég vona að spítalinn stefni í sömu átt og heilbrigðisráðuneytið í þessum efnum.“
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra segir stóra verkefnið vera að veita eins mikla þjónustu og mögulegt er fyrir það fjármagn sem er fyrir hendi. „Það er jafnframt verið að skoða hvað hægt er að gera til að fólk fái notið sín í starfi.“
Guðlaugur bendir á að nú sé unnið með skilvirkari og skipulagðari hætti en áður hafi verið gert á ýmsum sviðum. „Auk þess að vinna okkur í gegnum biðlista aldraðra sem bíða eftir hjúkrunarrými var nýlega undirritaður samningur við augnlæknastofurnar Sjónlag hf. og LaserSjón ehf. um 1.600 augasteinsaðgerðir næstu tvö árin. Á næsta ári ætti því biðlisti eftir slíkum aðgerðum að heyra sögunni til.“
Í hnotskurn
Hvíldar- og biðdeild fyrir aldraða var lokað á Landakoti í fyrra vegna manneklu. Samið var við Grund í vor um rekstur deildarinnar.Innlent »
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 2. október 2007, Innlent Mannekla og breytingar
- Fimmtudagur, 29. janúar 2009, Innlent Deildum lokað á Landakoti
- Þriðjudagur, 14. ágúst 2007, Innlent Stefnt að fækkun dvalarrýma
- Laugardagur, 5. apríl 2008, Innlent Rennur blóðið til skyldunnar
- Föstudagur, 28. desember 2007, Innlent Hætt að taka við fólki af biðlistum á Grund
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































