Ríkisvaldið sér um sína
Fyrrverandi þingmönnum, sem horfið hafa frá þingstörfum á síðustu árum, virðist ekki hafa reynst erfitt að finna sér ný störf við hæfi. Samkvæmt óformlegri könnun 24 stunda sinna þeir sem hætt hafa sem þingmenn eftir alþingiskosningar 2003, en stunda þó enn vinnu, flestir störfum á vegum hins opinbera.
Lög um eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara frá árinu 2003 voru á sínum tíma m.a. rökstudd með því að erfitt væri fyrir fyrrverandi þingmenn og ráðherra að fóta sig á hinum almenna vinnumarkaði. Í hádegisviðtali Stöðvar 2 á fimmtudag impraði Geir H. Haarde forsætisráðherra og þessu, og sagði reynsluna sýna „að það getur verið mjög erfitt fyrir menn sem hafa verið í stjórnmálum að fá vinnu á nýjan leik. ...Þess vegna voru sett þarna inn ákvæði sem áttu að auðvelda mönnum að ...fara út úr pólitík án þess að þurfa að leita sér að öðru opinberu starfi.“
Frá því að lögin tóku gildi hafa þónokkrir þingmenn hætt í pólitík og hlotið opinber störf. Ber þar að nefna fyrstan Davíð Oddsson, sem verið hefur seðlabankastjóri frá því að hann hætti sem ráðherra árið 2005. Ári síðar hætti Halldór Ásgrímsson sem ráðherra og þáði starf sem framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.
Vinsælt er að láta fyrrverandi ráðherra fá sendiherrastöður. Hefur Sigríður Anna Þórðardóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra, þannig nýlega verið skipuð sendiherra. Fyrrverandi ráðherrarnir Tómas Ingi Olrich og Guðmundur Árni Stefánsson gegna stöðum sendiherra, en þeir voru báðir kosnir á þing árið 2003.
Hjálmar Árnason og Bryndís Hlöðversdóttir, sem bæði voru kosin á þing árið 2003, starfa hjá menntastofnunum þar sem stutt er í áhrif pólitíkusa; Hjálmar sem forstöðumaður fagskóla Keilis og Bryndís sem deildarforseti og aðstoðarrekor Háskólans á Bifröst. Guðrún Ögmundsdóttir, þingmaður þar til í fyrra, starfar einnig að menntamálum, en hún er verkefnastjóri hjá menntamálaráðuneytinu. Þá tók Margrét Frímannsdóttir, sem var þingmaður fram að síðustu kosningum, nýlega við starfi forstöðumanns Litla-Hrauns.
Einnig tíðkast að veita mönnum sem falla af þingi starf hjá stjórnmálaflokkum. Þannig gegnir Mörður Árnason, sem féll af þingi við síðustu kosningar, stöðu ritstjóra Samfylkingarinnar, og Magnús Þór Hafsteinsson, sem féll af þingi á sama tíma, starfar fyrir Frjálslynda flokkinn.





































