Sjálfstæðismenn með hreinan meirihluta á Akranesi
Sjálfstæðismenn mynda hreinan meirihluta í bæjarstjórn Akraness þar sem Karen Jónsdóttir fulltrúi F-lista hefur ákveðið að ganga í Sjálfstæðisflokkinn á Akranesi. Mun Sjálfstæðisflokkurinn einn mynda meirihluta bæjarstjórnar á Akranesi út kjörtímabilið.
Þetta kemur fram á heimasíðu Akranesbæjar. Unnið verður áfram á grunni málefnasamnings sem var í gildi milli Sjálfstæðisflokks og F-listans. Karen mun áfram verða formaður bæjarráðs og Gunnar Sigurðsson áfram forseti bæjarstjórnar. Bæjarmálasamþykktinni verður breytt og kosið að nýju í allar nefndir bæjarins.
Þá hefur Gísli S. Einarsson bæjarstjóri einnig ákveðið að ganga í Sjálfstæðisflokkinn á Akranesi. Ástæðan er fyrst og fremst ummæli Magnúsar Þór Hafsteinssonar, varabæjarfulltrúa F-lista og formanns félagsmálaráðs, um andstöðu sína við komu flóttamanna til Akraness.
„Hér hefur gengið á ýmsu undanfarið,” segir Gísli S. Einarsson bæjarstjóri Akraness um þessa ákvörðun sína og Karenar á vef Skessuhorns. „Ég hef ítrekað rætt við fjölmiðla um hugsanlega komu flóttamanna hingað til Akraness. Alls staðar hef ég haldið því fram að Akraneskaupstaður væri mjög vel í stakk búinn til þess að sinna þessu verkefni í samstarfi við það góða fólk sem kemur að því frá Rauða krossinum og félagsmálaráðuneytinu. Magnús hefur rifið þetta allt saman niður án þess að hafa til þess neitt umboð frá meirihluta bæjarstjórnar. Mín afstaða og ákvörðun nú byggist á því og ég hygg að það eigi við Karenu líka. Á þessum tíma hefur ekki borið neinn skugga á samtarf mitt við þau Gunnar og Karen.”
Magnús Þór Hafsteinsson mun því ekki lengur gegna formennsku í félagsmálaráði. „Þetta þýðir einfaldlega að allir þeir sem eru fulltrúar F-lista í nefndum og ráðum Akraness eru hér með úti. Það verður mjög fljótlega haldinn hér bæjarstjórnarfundur þar sem kynntar verða nýjar nefndir. Magnús verður þó ennþá varabæjarfulltrúi Karenar, því er ekki hægt að breyta.”
Gísli segir að fréttir af því að fulltrúar Samfylkingar, Vinstri grænna og Framsóknarflokks í Velferðarráði Reykjavíkurborgar hefðu lagt fram tillögu um að bjóða flóttamennina velkomna til Reykjavíkur hefði verið dropinn sem fyllti mælinn. Í tilkynningu frá Björk Vilhjálmsdóttur sagði meðal annars: „Það er mat okkar að ekki sé leggjandi á flóttafólk að flytjast í bæjarfélag þar sem formaður félagsmálaráðs er á móti komu þeirra og vinnur opinberlega gegn dvöl þeirra þar.”
„Þetta gekk gjörsamlega fram af manni. Ef Sjálfstæðiflokkurinn hefði samþykkt orð og gjörðir Magnúsar hefði ég sagt af mér. Það er klárt mál,” segir Gísli og bætir því við að þótt hann gangi til liðs við Sjálfstæðisflokkinn nú sé hann sami jafnaðarmaðurinn og hann hafi alltaf verið.
Bloggað um fréttina
-
Runólfur Jónatan Hauksson Liðhlaup og svik við kjósendur... -
Magnús Geir Guðmundsson Karen, Ó Karen! -
Baldur Kristjánsson Sómi að Frjálslyndri Sjálfstæðiskonu á Skaga -
Guðmundur Jónas Kristjánsson Allt eins og eitt stórt heimstré ! -
G. Valdimar Valdemarsson Þetta er nú meiri aðstoðin -
Hallur Magnússon #9541 Gengur Samfylkingin í Sjálfstæðisflokkinn? -
Magnús Helgi Björgvinsson Kannski að Magnús Þór læri nú að gæta orða sinna. -
G. Tómas Gunnarsson Órói og flóttafólk -
Stefán Friðrik Stefánsson Karen Jónsdóttir sparkar í Magnús Þór -
Gestur Guðjónsson Orð dagsins... -
Guðrún Emilía Guðnadóttir Auðvitað er þetta fagnaðarefni. -
Ingólfur H Þorleifsson Velkominn í hópinn frændi. -
Haraldur Bjarnason Þau eru öll orðin 23 ára og öll fyrrverandi eitthvað
Innlent »
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 14. maí 2008, Innlent Magnús gagnrýnir nýjan meirihluta
- Fimmtudagur, 15. maí 2008, Innlent Sviptingar á Akranesi
- Föstudagur, 16. maí 2008, Innlent Frjálslyndir á Akranesi lýsa stuðningi við Magnús
- Miðvikudagur, 10. október 2007, Innlent Meirihlutinn á Akranesi styður Gunnar
- Miðvikudagur, 28. maí 2008, Innlent „Við höfum nóg með okkur sjálf“
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































