Þrennt í haldi lögreglu vegna fjársvika
Lögreglan handtók í gær tvo karlmenn og eina konu í tengslum við greiðslukortasvindl sem átti stað hér á landi fyrir helgi, að sögn Ómars Smára Ármannssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns. Um þó nokkra fjármuni er að ræða en unnið er að rannsókn málsins og hvort það tengist öðru máli sem kom upp í mars sl. Að sögn Ómars Smára kemur í ljós í dag hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir þremenningunum.
Á þriðja hundruð kort fundust við húsleit og handtöku
Er fólkið grunað um að hafa komið hingað til lands gagngert til að ná fjármunum úr hraðbönkum með stolnum greiðslukortaupplýsingum. Við handtöku og húsleitir fundust á þriðja hundrað kort með greiðslukortaupplýsingum sem talið er að aflað hafi verið með ólögmætum hætti af kortum grunlausra kortanotenda erlendis.
Við slíka iðju er oftar en ekki notaður búnaður sem komið er fyrir á eða í grennd við hraðbanka eða annars staðar þar sem tekið er við greiðslukortum. Sambærilegur njósnabúnaður fannst hér á landi síðla árs 2006 í tengslum við handtöku tveggja Rúmena. Áður hafði fundist búnaður í fórum manns sem var að koma hingað til lands með Norrænu. Í fórum þessa fólks fannst einnig reiðufé, sem ætla megi að hafi verið aflað úr hraðbönkum hér á landi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.
Rannsókn málsins er á frumstigi. Hún beinist m.a. að því hvort hugsanleg tengsl geti verið við sambærilegt mál sem kom upp um síðastliðna páska. Þá voru tveir Rúmenar handteknir en talið er að þeir hafi tilheyrt hópi sem kom gagngert hingað til lands í sömu erindagjörðum.
Á föstudag varð vart við óeðlilega miklar og margar úttektir af erlendum kortum og í ljós kom að ekki var allt með felldu. Að sögn Hauks Oddssonar, framkvæmdastjóra Borgunar hf., í Morgunblaðinu í gær tókst að svo gott sem einangra þau kortanúmer sem um var að ræða og loka á frekari úttektir af þeim.
Starfsmenn Borgunar urðu svo varir við að reynt var að taka meira út af kortunum um helgina, en viðkomandi fékk þá einungis höfnun á kortið. Haukur segir upphæðirnar sem náðust út af kortum sem Borgun þjónustar hafa verið óverulegar, eða undir 100 þúsund krónum í heildina.
Að sögn Þórðar Jónssonar, sviðsstjóra hjá Valitor, voru samsvarandi upphæðir hjá þeim á bilinu 200-300 þúsund krónur. Gripið var til svipaðra aðgerða hjá Valitor, að takmarka úttektir af kortum með óeðlilega virkni.





































