Allt að 17 stiga hiti í dag

Fólk naut lífsins á Klambratúni í Reykjavík í veðurblíðunni í …
Fólk naut lífsins á Klambratúni í Reykjavík í veðurblíðunni í gærkvöldi. mbl.is/G. Rúnar

Hiti á suðvestanverðu landinu fer í allt að 17 stig í dag, samkvæmt spá Veðurstofunnar en á öðrum stöðum verður 3-10 stiga hiti og hætt er við næturfrosti norðaustanlands. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, segir að ekki hafi verið hlýrra á suðvesturhorninu í maíbyrjun um áraraðir.

Einar segir á heimasíðu sinni, að meðalhiti fyrstu 12 dagana í maí sé um 8,2°C.  Svo hlýtt hafi ekki verið í höfuðborginni þessa sömu daga frá því 1961 en þá var vorkoman svo öflug að hitinn mældist  8,5°C. 

Hlýtt var í Reykjavík í byrjun maí árið 2006 en var hitinn sjónarmun lægri.

Heimasíða Einars Sveinbjörnssonar
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert