Mótmælt á Alþingi

Atvinnubílstjórar efndu til mótmæla á Austurvelli fyrir hádegið og var hópur þeirra mættur fyrir utan Alþingishúsið en að þessu sinni fótgangandi. Hluti hópsins fór síðan inn í Alþingishúsið á þingpalla og þar gerðu nokkrir úr hópnum hróp að þingmönnum meðan á fyrirspurnatíma stóð.

Lögreglan fylgdist með mótmælunum en ekki var ástæða til að grípa til aðgerða.

Bílstjórar munu hafa sent um 30 þúsund manns smáskilaboð í síma með boði um mótmælin í gærkvöldi en undirtektir voru ekki alveg í takti við þær væntingar en um 100 mótmælendur hlýddu á forsprakka bílstjóra Sturlu Jónsson flytja ræðu og héldu menn síðan á þingpalla en héldu þó ró sinni.

Aðrar helstu fréttir í sjónvarpi mbl: 

  • Um 20.000 látnir í Kína
  • Baugsmálið
  • Hlýindi á suðvesturhorninu
  • Innlent kjöt í klípu
  • Listahátíð hefst í dag
  • Kvikmyndahátíðin í Cannes hafin
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert