Dagforeldrar eru alltof fáir
Nú eru starfandi 188 dagforeldrar í Reykjavík og eru þeir með pláss fyrir um 890 börn. Þar með er pláss fyrir um 26% barna á fyrsta og öðru ári sem búsett eru í Reykjavík, skv. tölum frá Hagstofu Íslands.
Helga Kristín Sigurðardóttir, dagmóðir, bendir á að þó þörfin sé mikil séu ekki foreldrar allra þessarra barna að leita að plássi því sumir séu með börn sín heima þar til þau komast á leikskóla.
Þegar ekki fæst pláss hjá dagmömmu setja margir foreldrar barnið á biðlista eftir plássi „í þeirri fölsku von að þeir komi barni sínu að“, eins og ein dagmóðirin orðar það, vegna þess að biðlistinn getur verið langur og margir mánuðir liðið þar til fyrsta plássið losnar. Orsakast löng bið fyrst og fremst af því hve auðvelt er að fá pláss í leikskóla í hverfi barnanna en dæmi eru um að börn komin vel á þriðja ár séu enn hjá dagmömmu.
Að auki er ekki víst að pláss losni á heppilegum tíma. Ef pláss fæst t.d. mánuði áður en fæðingarorlofi lýkur er möguleiki á að tryggja sér plássið með því að greiða fyrir þann mánuð þó að þjónustan sé ekki nýtt.
Að sögn dagmæðra er þó óalgengt að foreldrar geri þetta enda þarf að greiða fullt verð fyrir mánuðinn hafi barnið ekki náð tilsettum aldri svo niðurgreiðsla fáist.
Dagforeldrar of valdamiklir
Dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi og ákveða gjaldskrá sína og vinnutíma sjálfir. Ein móðirin sem 24 stundir ræddu við segir þetta galla. Dagforeldrar geti hækkað gjaldskrá sína og þar sem dagforeldrar séu mjög fáir geti foreldrar ekki annað en greitt.Helga Kristín segist halda að almennt séu foreldrar látnir vita með góðum fyrirvara um slíkar breytingar og telur ólíklegt að mikil misnotkun valds eigi sér stað.
Önnur móðir bendir á að tímabilið frá því að fæðingarorlofi lýkur og þangað til barnið fer í leikskóla sé erfitt. „Maður er auðvitað þakklátur fyrir að hafa fengið pláss fyrir barnið hjá dagmömmu e n það þýðir endalaus hlaup því flestar eru bara með átta tíma pláss. “
Bloggað um fréttina
-
Ingunn Valgerður Henriksen Það hafa ekki allir efni á að setja börnin sín ...
Innlent »
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 28. júní 2008, Innlent „Vantar fleiri dagforeldra“
- Mánudagur, 24. september 2007, Innlent 60.000 fyrir vistun hjá dagforeldri
- Mánudagur, 8. september 2008, Innlent Dagforeldrar lýsa eftir börnum
- Fimmtudagur, 7. júní 2007, Innlent Nýr leikskóli í Reykjavík með rými fyrir 88 börn
- Miðvikudagur, 27. ágúst 2008, Innlent Stanslaust álag á barnið og streita fyrir alla
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































