Meintur innbrotsþjófur reyndist kattaeigandi

skyggna úr safni fyrst birt 19921219 Mappa Dýr 2 síða …
skyggna úr safni fyrst birt 19921219 Mappa Dýr 2 síða 3 röð 1 mynd 1a

Lögreglan í Reykjavík fékk í nótt tilkynningu um grunsamlegar mannaferðir á bílastæði í Breiðholti en þar sást maður sem grunur lék á að væri innbrotsþjófur. Hann var að skoða bíla hátt og lágt og áleit tilkynnandi að maðurinn hefði eitthvað illt í huga.  

Lögreglan var fljót á vettvang og spurði manninn hvaða erindi hann ætti á bifreiðastæðinu. Maðurinn reyndist þá hafa orðið fyrir því óláni, að missa nokkra ketti úr vörslu sinni og var nú að reyna að endurheimta þá. Hann var með fulla vasa af kattarmat en hafði skriðið árangurslaust meðfram nokkrum bílum til að lokka til sín kettina.

Lögreglan segir, að viðleitni mannsins hafi litlu skilað enda séu kettir þekktir fyrir flest annað en að láta vel að stjórn. 

Í gærmorgun var lögreglan einnig kölluð að húsi í Grafarvogi en tilkynning hafði borist um grunsamlegar mannaferðir þar.  Með fylgdi, að maður hefði sést skríða inn um glugga á áðurnefndu húsi.

Þegar komið var á staðinn og haft tal af manninum reyndist háttalag hans eiga sér eðlilegar skýringar. Hér var um vinnustað hans að ræða en af ókunnum ástæðum komst maðurinn ekki inn um dyrnar og greip því til annarra ráða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert