Mikilvægt skref

mbl.is/Ómar

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segir í yfirlýsingu, að tvíhliða gjaldmiðlaskiptasamningar milli seðlabanka Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og Íslands séu mikilvægt skref til að styrkja aðgang Seðlabankans að erlendu lausafé og efla traust á íslenskt fjármálakerfi og efnahagslíf.  Frekari aðgerðir til að styrkja erlenda lausafjárstöðu Seðlabankans séu í undirbúningi.

Seðlabankinn tilkynnti um samningana í dag og segir þá vera viðbúnaðarráðstöfun og veiti Seðlabanka Íslands aðgang að evrum gerist þess þörf. Hver samningur um sig veitir aðgang að allt að 500 milljónum evra, jafnvirði 60 milljarða króna, gegn íslenskum krónum. Seðlabanki Íslands getur dregið á samningana þegar og ef nauðsyn krefur.

Ofangreindir samningarnir auka verulega aðgang Seðlabankans að erlendu lausafé og mun bankinn auka þann aðgang enn frekar á næstunni.

Geir segir í yfirlýsingu, að ríkisstjórnin og Seðlabanki Íslands hafi að undanförnu undirbúið margvíslegar aðgerðir til að styrkja aðgang Seðlabankans að erlendu lausafé og efla traust á íslenskt fjármálakerfi og efnahagslíf. Gjaldmiðlaskiptasamningarnir séu mikilvægt skref í átt að ofangreindum markmiðum.

Geir segist einnig leggja áherslu á þá meginstefnu ríkisstjórnarinnar, að stuðla að auknum hagvexti og skipulagsbreytingum á íslenska hagkerfinu með það fyrir augum að treysta efnahagslegan stöðugleika.

Til þess að bæta virkni peningamálastefnunnar muni ríkisstjórnin meðal annars þegar undirbúa og birta trúverðuga áætlun um umbætur og breytingar á skipulagi Íbúðalánasjóðs.

Til þess að tryggja áframhaldandi trausta opinbera fjármálastjórn muni stjórnvöld leitast við að viðhalda hinu lága skuldastigi hins opinbera og styrkja umgjörð fjármálastefnunnar.

Stjórnvöld muni einnig vinna að þessum markmiðum á öðrum sviðum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert