Tillaga að matsáætlun hjá Skipulagsstofnun
Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is
Verkfræðistofan Línuhönnun og Vegagerðin hafa sent Skipulagsstofnun tillögu að matsáætlun fyrir umhverfismat breikkunar Suðurlandsvegar, á kaflanum frá Hólmsá til Hveragerðis. Tillagan liggur frammi til kynningar hjá Skipulagsstofnun og er öllum frjálst að skoða hana og gera við hana athugasemdir en þeim ber að skila eigi síðar en 30. maí nk.
Þar sem hér er um tillögu að matsáætlun að ræða liggur mat á umhverfisáhrifum ekki fyrir en í tillögunni má sjá þá kosti sem metnir verða miðað við þá framkvæmdaáætlun sem fyrir liggur.
Í matsáætlun kemur fram að þrjár tillögur hafi verið til skoðunar hvað varðar mislæg vegamót við Bolaöldu og Litlu kaffistofuna en þær gera allar ráð fyrir einum vegamótum á þessum stað. Í tveimur þeirra er gert ráð fyrir að færa þurfi Litlu kaffistofuna en sú þriðja gerir ekki ráð fyrir slíkri færslu.
Fram kemur í tillögu Línuhönnunar að fjórir þættir framkvæmdarinnar muni valda umhverfisáhrifum. Í fyrsta lagi er þar um að ræða jarðrask af völdum sjálfrar vegagerðarinnar en þar ber einnig að nefna að vegfyllingar hafa áhrif á lífríki auk sjónrænna áhrifa nýs vegar og mislægra vegamóta. Í öðru lagi hefur umferð á framkvæmdatíma áhrif á umhverfi og í þriðja lagi mun umferð á rekstrartíma framkvæmdarinnar hafa áhrif á umhverfið. Síðast en ekki síst ber að nefna að efni þarf í fyllingar, burðarlög og slitlag og meta þarf áhrif af efnistöku og frágangi.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 10. júlí 2007, Innlent Tillögu að matsáætlun vegna Sundabrautar skilað til Skipulagsstofnunar
- Föstudagur, 16. maí 2008, Innlent Breikkun Suðurlandsvegar í umhverfismati
- Miðvikudagur, 19. mars 2008, Innlent Tillaga að matsáætlun vegna framkvæmda að Þeistareykjum
- Miðvikudagur, 18. febrúar 2009, Innlent Matsáætlun vegna Suðurlandsvegar
- Fimmtudagur, 24. júlí 2008, Innlent Tillaga að matsáætlun
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































