Ók á hús í Breiðholti

mbl.is/Július

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kærði tvo menn fyrir ölvunarakstur í nótt.  Annar mannanna ók á hús í Breiðholti og var að sögn lögreglu töluvert ölvaður, og er vistaður á lögreglustöð.  Hinn maðurinn var stöðvaður í eftirliti, og kærður fyrir ölvunarakstur en sleppt að lokinni skýrslutöku.

Þá stöðvaði lögregla tvo menn með töluvert magn af ætluðum sterum í fórum sínum í nótt.  Að sögn lögreglu eru mennirnir í haldi lögreglu og málið bíður rannsóknar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert