Varað við tölvupósti
mbl.is/Jim Smart
Fjármunabrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu varar við tölvupósti er virðist við fyrstu sýn stafa frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF). Sendandinn segist stýra verkefni innan Evrópusambandsins vegna skyndilegra fuglaflensutilfella innan vissra hluta Evrópusambandsins.
Bandarískir samstarfsaðilar, sem fjármagni verkefnið, hafi hins vegar greitt honum í formi bandarískra tékka, bankamillifærslna og peningasendinga. Hins vegar hafi hann ekki getað, vegna lítils fyrirvara og mikilla ferðalaga, stofnað bankareikning í Bandaríkjunum til að innleysa þessa fjármuni, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.
Af þeim sökum bjóði hann viðtakanda tölvupóstsins að gerast milligöngumaður um móttöku og innlausn þessara fjármuna. Fyrir vikið geti viðkomandi aðili fengið í sinn hlut allt að 5.000 dollara þóknun fyrir tveggja til þriggja vikna vinnu. Til þess að svo geti orðið þurfi viðtakandi tölvupóstsins að gefa upp nafn, heimilisfang, stöðuheiti og símanúmer.
„Hér er augljóslega um svokallaðan Nígeríupóst að ræða sem á sér ýmis birtingarform. Hér er um að ræða þekkta leið þar sem svikarinn beitir nöfnum þekktra alþjóðlegra stofnana. Þess eru jafnvel dæmi að misnotuð séu nöfn löggæslustofnana.
Að marggefnu tilefni er varað við því að svara slíkum sendingum. Þeir sem gera slíkt eiga á hættu að verða fyrir verulegu fjárhagslegu tjóni. Þar að auki er hugsanlegt að þátttaka í flutningi fjármagns, eins og oft er lýst í slíkum gylliboðum, gæti út af fyrir sig talist vera þátttaka í peningaþvætti. Slíkt er refsivert, jafnvel þótt um gáleysi sé að ræða af hálfu þess sem tekur þátt í slíku," samkvæmt tilkynningu frá lögreglu.
Bloggað um fréttina
-
Magnús Geir Guðmundsson "Önnur hlið á sama pening"! -
-
Már Högnason Fyrst Lýður vann, get ég unnið líka -
Tryggvi Hjaltason Svindlaðu til baka... -
Þórður Guðmundsson Best að vera mjög varkár á netinu
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 15. ágúst 2008, Innlent Íslenskur friðargæsluliði til Georgíu
- Þriðjudagur, 28. apríl 2009, Innlent Til starfa hjá Barnahjálp SÞ í Súdan
- Föstudagur, 1. maí 2009, Innlent Önnur lögmál á landsbyggðinni
- Föstudagur, 30. janúar 2009, Innlent Íslenskur friðargæsluliði til Palestínu
- Þriðjudagur, 19. ágúst 2008, Innlent „Gífurleg tortryggni gagnvart Rússum"
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































