Hreindýr réðst á starfsmann við kálfamerkingar
Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is
Það er nóg að gera hjá starfsfólki Náttúrustofu Austurlands þessa dagana en það er að rannsaka hreindýr og gæsir m.a. fyrir Landsvirkjun. Ýmislegt getur komið upp á í þessari vinnu. Því fékk Reimar Ásgeirsson að kynnast þegar hann ætlaði að merkja nýborinn kálf austanundir Þrælahálsi.
Kýrin réðst á Reimar og á vef Náttúrustofu Austurlands er fullyrt að kýrin hafi gert tilraun til að drepa hann. Reimar sagði í samtali við Morgunblaðið að það væri kannski fullmikið sagt en hún hefði vissulega reynt að hrekja sig frá kálfinum. „Hún kom á fullri ferð með hausinn undir sér og renndi sér á mig. Ég náði að grípa í hornin rétt áður en hún náði til mín og smeygja mér til hliðar þannig að annað hornið rétt stakkst í úlpuna.“
Kýrin gerði fleiri tilraunir til að hrekja Reimar í burtu en hann náði að smeygja sér undan eins og fimasti nautabani.
Þá náði Gústaf F. Eggertsson eftirlitsmaður myndum af hreindýrum á sundi yfir Jöklu skammt frá stöðvarhúsinu í Fljótsdal nýlega. Hár hreindýra eru hol að innan þannig að það er eins og þau séu í björgunarvestum. Dýrin eru mjög létt í vatninu út af þessu. Vatn er engin fyrirstaða fyrir dýrin. Þau skella sér óhikað út í,“ sagði Skarphéðinn Þórisson, líffræðingur á Náttúrustofu Austurlands.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 3. ágúst 2007, Innlent Hreindýr hafa sést á Arnarvatnsheiði
- Föstudagur, 17. apríl 2009, Innlent Fylgst með ferðum hreindýra
- Mánudagur, 19. janúar 2009, Innlent Heimilt að veiða 1333 hreindýr í haust
- Mánudagur, 14. júlí 2008, Innlent Ærnar með gemsa og senda SMS
- Fimmtudagur, 25. september 2008, Innlent Baksvið: Sagan bak við deiluna á Suðurnesjum
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju





































