Sýslumanni ekki stætt á að synja nektarumsókn Goldfingers
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is
Dómsmálaráðuneytið telur ósannað að fullyrðingar lögreglustjóra LRH þess efnis, að nektardansmeyjar séu oftast þolendur misneytingar, mansals og glæpa, eigi við um starfsemi Goldfinger. Hefur ráðuneytið því fellt úr gildi ákvörðun sýslumannsins í Kópavogi um að synja Baltik ehf. um heimild í rekstrarleyfi til þess að fram fari nektardans í atvinnuskyni á Goldfinger. Lögreglustjóri LRH var umsagnaraðili vegna leyfisumsóknar Goldfingers og telur dómsmálaráðuneytið að hún sé háð verulegum annmörkum og leiði það til ógildingar á ákvörðun sýslumanns.
Þegar sýslumaður neitaði að gefa Goldfinger leyfi fyrir nektardansi, var ákvörðunin kærð til dómsmálaráðuneytisins af hálfu Goldfingers sem taldi lögreglustjóra hafa farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt. Honum bæri að gefa út hlutlausa umsögn en hvergi væri þess getið í lögum að umsagnaraðilar gætu látið gildisdóm um starfsemina ráða för við afgreiðslu umsagna. Brynjar Níelsson lögmaður Goldfingers bendir í kærunni á að ekki hafi verið ætlun löggjafans að leggja í hendur einstakra umsagnaraðila að meta hvort nektardans sé „góður eða vondur“ eða hvar mannúðin eða almannahagsmunir liggi í málum sem þessum.
Lögmaðurinn bendir á að í umsögn lögreglustjóra sé ýjað alvarlega að því að stúlkur á Goldfingar séu þvingaðar til þess og að skipulögð glæpasamtök útvegi staðnum stúlkur. Hafi staðurinn óskað eftir rökstuðningi og gögnum til stuðnings þessu en verið neitað. Segir lögmaðurinn að það sé fáheyrt og sennilega einsdæmi að stjórnvöld fari eftir sögusögnum og slúðri við ákvarðanatöku um mikilvæg réttindi eins og hér reyni á. Það sé brot á Mannréttindasáttmála Evrópu að stjórnvald væni aðila um refsiverða háttsemi án þess að hann hafi verið ákærður og hvað þá dæmdur.
Í umsögn lögreglustjóra segir m.a. að reynsla undanfarinna ára af eftirliti með nektarstöðum sé miður góð. Þar er átt við afskipti lögreglu vegna opnunartíma, atvinnuréttinda starfsmanna og ákvæða um bann við einkasýningum á nektardansi í lokuðu rými.
Innlent »
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 22. maí 2008, Innlent Ákvörðun sýslumanns felld úr gildi
- Föstudagur, 23. maí 2008, Innlent Boða tiltekt í dómsmálaráðuneytinu
- Föstudagur, 23. maí 2008, Innlent Björn: „Ég hef ekki valdið“
- Föstudagur, 3. ágúst 2007, Innlent Verða léttklæddar á Goldfinger
- Laugardagur, 13. september 2008, Innlent Goldfinger má bjóða upp á nektardans
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































