Heimgreiðslur úrelt hugmynd

Stjórn Kvenréttindafélags Íslands (KRFÍ) varar við þeirri leið sem sveitarfélög hafa í auknum mæli valið með því að koma á heimgreiðslum til foreldra barna sem eru á biðlista eftir leikskóla.

Stjórnin óttast að greiðslurnar dragi úr atvinnuþátttöku kvenna fremur en karla og telur æskilegra að lengja orlof foreldra. „Hugmyndir um heimgreiðslur eru úreltar og hefur reynslan sýnt að það er oftast konan sem fær það hlutskipti að sitja heima af því laun kvenna eru oftar lægri en laun karla.“

Þá hafi reynslan erlendis sýnt að greiðslurnar verði oft til þess að konur sem eru innflytjendur einangrist og börn þeirra fari á mis við þroska sem þau fengju í leikskólum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert