Nýtt fólk til Morgunblaðsins

Nýtt fólk kemur til starfa hjá Morgunblaðinu um mánaðamótin þegar Ólafur Þ. Stephensen tekur við starfi ritstjóra blaðsins. Fram kemur í viðtali við Ólaf í Morgunblaðinu í dag, að Ragnhildur Sverrisdóttir muni stjórna sunnudagsblaðinu og Björgvin Guðmundsson, sem hefur starfað sem viðskiptaritstjóri Fréttablaðsins, muni stýra því verki að efla viðskiptaumfjöllun blaðsins.

Þá kemur fram, að Kolbrún Bergþórsdóttir, kemur til blaðsins af  24 stundum. Ólafur boðar frekari mannabreytingar innanhúss, sem muni upplýsast á næstu dögum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert