Spáð allt að 20 stiga hita í dag

Veðurstofan spáir sunnan- og suðvestanátt á landinu í dag, víða 3-8 metrum á sekúndu. Skýjað verður á vestanverðu landinu og dálítil væta í nótt og á morgun en yfirleitt léttskýjað eystra. Hiti verður víða 10 til 15 stig að deginum, en allt að 20 stigum Norðaustanlands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert