Samningar gerðir við ríkið
Gengið var undir miðnættið frá samningi aðildarfélaga BSRB, sem áttu lausa samninga við ríkið 1. maí sl., við samninganefnd ríkisins. Gert var
ráð fyrir að Starfsgreinasambandið skrifaði einnig undir kjarasamning við ríkið innan skamms.
„Ég er mjög ánægður að samkomulag skuli vera í höfn,“ sagði Ögmundur
Jónasson, formaður BSRB, í kvöld í samtali við Morgunblaðið. „Ég
tel hagsmunum félaga í BSRB vel borgið með því að gera skammtímasamning
um krónutöluhækkun á laun við þessar aðstæður. Þó að samningurinn sé
til skamms tíma eyðir þetta óvissu."
Samningur BSRB gildir frá 1. maí sl. til loka mars á næsta ári. Samið var til skamms tíma eða til loka mars á næsta ári. Samið var um 20.300 króna hækkun allra launataxta og einnig var samið um hækkun greiðslu ríkisins í styrkarsjóði BSRB um 0,2 prósentur, úr 0,55% í 0,75% um næstu áramót. Þá er í samningnum gengið frá ýmsum öðrum réttindamálum. Meðal annarra atriða sem samið var um er að desemberuppbótin hækkar úr 41.800 í 44.100 krónur.
Ögmundur sagði, að BSRB hefði lagt áherslu á að umönnunargeirinn yrði efldur með sértækum aðgerðum. Það væru vonbrigði að það skyldi ekki ná fram að ganga í þessum samningum.
Samningur BSRB er gerður fyrir hönd Félags flugmálastarfsmanna ríkisins, Félags starfsmanna stjórnarráðsins, Kjalar-stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, Samflots bæjarstarfsmannafélaga, SFR-stéttarfélags í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélags Íslands, Starfsmannafélags Garðabæjar, Starfsmannafélags Kópavogs, Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Suðurnesja.
Bloggað um fréttina
-
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir Samningar BSRB við ríkið -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Skammtímasamningur á krepputímum -
Bergur Thorberg Hvenær kemur kakan þín og jólin? -
Hólmdís Hjartardóttir Vonbrigði -
Björgvin Guðmundsson BRSB fékk 20.300 kr hækkun en aldraðir 9.400 kr.! -
Vésteinn Valgarðsson Léttir -- hálfur léttir
Innlent »
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 2. maí 2008, Innlent Samningafundur boðaður í dag
- Föstudagur, 13. júní 2008, Innlent Ríkisstarfsmenn í Kili samþykkja kjarasamning
- Föstudagur, 2. maí 2008, Innlent Fulltrúar BSRB og ríkis á samningafundi
- Mánudagur, 26. maí 2008, Innlent Starfsgreinasambandið og ríkið sömdu
- Fimmtudagur, 15. maí 2008, Innlent BSRB og ríkið hefja kjaraviðræður
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“





































