Sögulegur atburður endurtekinn

Horfið var aftur til vinstri umferðar eitt andartak í Reykjavík eftir hádegið í dag, þegar sviðsettur var sá sögulegi atburður er skipt var í hægri umferð á Íslandi fyrir 40 árum. Bíl var ekið af vinstri akrein yfir á þá hægri, líkt og fyrst var gert að morgni 26. maí 1968.

Akreinaskiptin voru sviðsett á sama stað og þau fóru fram fyrir 40 árum, og undir stýri á gömlum Rambler var Valgarð Briem, sem ók þá fyrstur yfir á hægri akrein. Við hlið hans nú sat Kristján Möller samgönguráðherra, og í nýtísku tvinnbíl á eftir þeim kom Geir H. Haarde forsætisráðherra.

Það var Umferðarráð sem stóð að sviðsetningunni í dag, og að henni lokinn var efnt til hátíðarsamkomu í lestrarsal Þjóðmenningarhússins við Hverfisgötu, þar sem Kristján flutti stefnuræðu sína í umferðaröryggismálum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert