Settur forstjóri Útlendingastofnunar í eitt ár

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur sett Hauk Guðmundsson, skrifstofustjóra í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, í embætti forstjóra Útlendingastofnunar meðan á fæðingarorlofi Hildar Dungal, skipaðs forstjóra, stendur, þ.e. frá 1. júní 2008 til 31. maí 2009.

Kristrún Kristinsdóttir, sem verið hefur skrifstofustjóri í ráðuneytinu með aðsetur í Brussel undanfarin ár, mun leysa Hauk af í starfi skrifstofustjóra einkamála- og borgaraskrifstofu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert