Telur umboðssvik greinilega hafa átt sér stað
„ÞEGAR þeir sem stóðu að því að flytja séreignir tryggingataka Samvinnutrygginga úr stofnsjóði trygginganna yfir í fjárfestingarfélagið Gift áttu þeir að, og máttu, vita að þeir hefðu ekki umboð til slíks eins og bréf ríkisskattstjóra sýnir,“ segir Þorsteinn Ingason, fyrrverandi hluthafi í Hólmadrangi á Hólmavík og eigandi Stokkfisks. Vegna gjaldþrots síns stendur hann nú í málaferlum við Kaupþing.
Með orðum sínum hér að framan vísar Þorsteinn til bréfs, sent honum frá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra, hinn 6. maí sl. Þorsteinn hafði sent fyrirspurn til fyrirtækjaskrár um hvort Samvinnutryggingar uppfylltu skilyrði um samvinnufélög og hvort skilanefnd þess hefði verið löggilt.
Í svari fyrirtækjaskrár kemur fram að þar sem eignarhald og stjórnskipulag Samvinnutrygginga hafi að mati fyrirtækjaskrár ekki verið með þeim hætti sem kveðið er á um í lögum um samvinnufélög hafi ekki verið unnt að styðjast við 12. kafla þeirra laga um breytingu félagsins í hlutafélag. Jafnframt kemur fram í bréfi fyrirtækjaskrár til Þorsteins að lögmanni félagsins hafi verið send afstaða fyrirtækjaskrár hinn 25. apríl 2007. Tilkynnt var að Eignarhaldsfélaginu Samvinnutryggingum yrði slitið og eignir þess færðar inn í Gift hinn 15. júní 2007. Í svari fyrirtækjaskrár kemur fram að ekki hafi verið óskað löggildingar á skilanefnd.
Þorsteinn segir í samtali við Morgunblaðið að þar sem tryggingatakarnir voru síðan skuldsettir fyrir lánum til hlutabréfakaupa sem höfðu mikið tap í för með sér sé hér klárlega um umboðssvik að ræða. „Ég hef borið það undir löglærða menn og þeir taka undir þetta. Kaup á eigin bréfum Kaupþings á síðustu dögum síðasta árs bera með sér að þar hafi verið um örlætisgjörning að ræða. Kaupþing banki hafði þá hagsmuni að þessi bréf væru keypt því ella hefðu þau dregist frá eigin fé bankans við uppgjör um áramót,“ segir hann.
Innlent »
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 15. október 2008, Innlent Verðmæti Giftar hefur rýrnað mikið
- Föstudagur, 14. nóvember 2008, Innlent Gift að gefast upp?
- Fimmtudagur, 27. nóvember 2008, Innlent Kaupþing réð ferðinni í Gift
- Föstudagur, 28. nóvember 2008, Innlent Vilja opinbera rannsókn á fjárþurrð Giftar
- Fimmtudagur, 16. október 2008, Innlent Ekkert ákveðið um slit Giftar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































