Þurfa að fara rúmlega 17 þúsund ferðir með jarðveg
Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is
Verktakafyrirtækið Klæðning hefur hafið flutning á jarðvegi úr grunni bílastæðishúss og hótels sunnan við tónlistar- og ráðstefnuhúsið við Reykjavíkurhöfn og verða fluttir þaðan um 300.000 rúmmetrar af jarðvegi á næstu mánuðum en áætluð verklok eru 1. mars á næsta ári. Vörubílar þurfa að fara rúmlega 17 þúsund ferðir með jarðveginn.
Karl Helgi Jónsson, yfirverkstjóri hjá Klæðningu, segir að verkið sé rétt að byrja og allar tímasetningar geti breyst vegna hugmynda um að leggja Geirsgötuna í stokk á svæðinu.
Að sögn Karls verða um sinn notaðir átta flutningabílar og tvær stórar þungavinnuvélar til þess að fleyga klöppina og moka á bílana, en grafið verður niður á allt að sjö metra dýpi fyrir neðan sjávarmál. Jarðvegurinn fer í uppfyllingu í Sundahöfn neðan við Klepp og þar sem stutt sé að fara þurfi ekki marga bíla í flutninginn að svo stöddu.
Á annað hundrað þúsund fermetrar af jarðvegi voru fjarlægðir úr grunni tónlistar- og ráðstefnuhússins og er því ljóst að færa þarf til mikinn jarðveg vegna framkvæmdanna. Einn malarflutningabíll með tengivagni tekur um 17 rúmmetra og hver bíll fer því nokkrar ferðirnar. Auk þess þarf að huga að bökkunum og tryggja að þeir falli ekki niður. Grjót er fleygað á staðnum og það notað í fyllingar á svæðinu. Karl bendir á að með því sparist miklir flutningar á efni en fyrir utan jarðvegsflutninga þarf að dæla miklu magni af sjó upp úr grunninum og er gert ráð fyrir að tonnin verði nokkrar milljónir í verklok.
Klæðning á færanlega þvottastöð fyrir flutningabílana og stendur til að koma henni fyrir í grunninum, að sögn Karls. Hann segir að hún hafi áður verið í Vatnsmýrinni og síðan hafi hún verið lánuð vegna framkvæmda við Háskólann í Reykjavík, en í báðum tilfellum hafi jarðvegurinn verið fluttur mun lengri leið eða á Hólmsheiði.
Innlent »
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 16. maí 2008, Innlent 300 þúsund rúmmetrar af jarðvegi fjarlægðir
- Föstudagur, 14. september 2007, Innlent Olíumengaður jarðvegur fluttur upp á Hólmsheiði
- Fimmtudagur, 31. maí 2007, Innlent Tjónið á Sauðárkróki talið nema allt að 50-70 milljónum króna
- Þriðjudagur, 3. mars 2009, Innlent Tekist á um Tónlistarhús
- Sunnudagur, 30. september 2007, Innlent Farþegar á skemmtiferðaskipum eyða 400 milljónum
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































