Háu eldsneytisverði víða mótmælt
Víðar en á Íslandi mótmæla vörubílstjórar háu eldsneytisverði. Vörubílstjórar í Bretlandi efndu til mótmæla í London og Wales í gær, og kröfðust þess að eldsneytisverð og eldsneytistollar yrðu lækkaðir. Háu eldsneytisverði hefur einnig nýlega verið mótmælt í Taívan, Frakklandi, og í Bandaríkjunum.
Í kjölfar mótmælanna segir Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hátt eldsneytisverð komið til að vera, og að vandamálið hafa breytt úr sér um allan heim. Segir hann að margt bendi til þess að vandinn sé til langtíma þar sem eftirspurn um allan heim sé mun meiri en framboð. Brown átti fund með yfirmönnum í olíugeiranum í Skotlandi í dag og hvatti hann þá til þess að leita lausna við að auka olíubirgðir. Brown sagðist vilja gera allt í sínu valdi til þess að hjálpa þeim sem eiga erfiðast með að mæta hækkandi kostnaði eldsneytis.
„Hvetur okkur áfram"
Um mótmæli vörubílstjóra í fleiri löndum segir Sturla Jónsson, talsmaður vörubílstjóra, að menn séu ánægðir með að fleiri standi upp og mótmæli háu eldsneytisverði. „Þetta sýnir að þetta er ekki bara eitthvað röfl í okkur hér á Íslandi, við höfum stuðning víðar, þetta hvetur okkur áfram, menn eru ánægðir með þetta," segir Sturla.
Sturla segir vörubílstjóra ætla að halda mótmælum áfram. „Á hádegi á morgun verðum við með jarðarför á loforðum ríkisstjórnarinnar, á Austurvelli fyrir framan Alþingishúsið, við verðum með líkkistur fyrir hvert ráðuneyti, 11 líkkistur, Jóhanna Sigurðardóttir sleppur, þar sem hún hefur verið að vinna fyrir fólkið, við sáum ekki ástæðu til þess að vera með líkkistu fyrir hennar ráðuneyti," segir Sturla og bætir við að vörubílarnir verði skreyttir með útfararborðum og krönsum.
Innlent »
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 31. mars 2008, Innlent Umferðarhnútur við Kúagerði
- Mánudagur, 31. mars 2008, Innlent Bílstjórar aka óvenju hægt
- Mánudagur, 31. mars 2008, Innlent Viðbúnaður vegna umferðatafa
- Mánudagur, 31. mars 2008, Innlent Sátt náðist í Ártúnsbrekku
- Mánudagur, 31. mars 2008, Innlent Umferð farin að ganga eðlilega fyrir sig
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































