Landsvirkjun semur við Ístak um að ljúka við Hraunaveitu

Þrátt fyrir góðviðri á Norðausturlandi er Hálslón í klakaböndum.
Þrátt fyrir góðviðri á Norðausturlandi er Hálslón í klakaböndum. Ljósmynd/Þórhallur Árnason

Stjórn Landsvirkjunar hefur ákveðið að ganga til samninga við Ístak um að ljúka framkvæmdum við Hraunaveitu Kárahnjúkavirkjunar. Í kjölfar gjaldþrots Arnarfells, sem upphaflega var með verkið, stofnaði Landsvirkjun dótturfélagið Hraunaveitu ehf. og yfirtók verkefnið og hluta af starfsmönnum við framkvæmdirnar. Formlegt veitingarbréf til Ístaks verður sent út nú í vikunni.

Sigurður Arnalds, talsmaður Kárahnjúkavirkjunar hjá Landsvirkjun, segir Ístak byrjað að ræða við starfsmenn Hraunaveitu ehf. um áframhaldandi störf að verkefninu. Vonir standi til að það gangi upp að mestu og mannaskipti verði sem allra minnst. 130 vinna nú við Hraunaveitu, Íslendingar og útlendingar til helminga. Starfsmönnum mun þó fjölga í um 250 í sumar. Ístak bauð í gerð Hraunaveitu ásamt Arnarfelli og nam tilboðið tæpum 2,2 milljörðum króna án virðisaukaskatts. Samið er nú við Ístak á þeim grunni. Um er að ræða vinnu við Kelduá, öll göng og framkvæmdir þar fyrir austan og lok vinnu við Jökulsárveitu og Ufsarstíflu.

Jökulsárveita tilbúin í sumar

Sigurður segist ekki telja að útskiptingar á fyrirtækjum við framkvæmdirnar séu orðnar kostnaðarsamar fyrir Landsvirkjun. „Þetta hefur farið nokkuð farsællega, fyrst og fremst vegna þess að lendingin var mjúk þegar við tókum verkið yfir til bráðabirgða. Síðan kom mjög sanngjarnt tilboð frá Ístak um að taka þetta yfir og halda áfram,“ segir Sigurður. Verkið stenst að hans sögn áætlun og meiningin að Jökulsárveita verði rekstrarhæf í ágúst. Fyllist Hálslón í sumar eru þó ekki líkur á að mikið vatn verði notað til rafmagnsframleiðslu úr Jökulsárveitu fyrr en næsta vor. Síðasta frágangi austast á Hraunum lýkur svo sumarið 2009.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert