Tjöld við grunnskóla á skjálftasvæðunum í nótt
Stólar settir upp við Sólvallaskóla á Selfossi þar sem fjöldahjálparstöð var sett á stofn. mbl.is/Golli
Sett verða upp tjöld í nótt við grunnskólana í Þorlákshöfn, á Eyrarbakka og Stokkseyri og í Hveragerði. Þar verða hjálparsveitamenn á vakt og þangað geta heimamenn leitað eftir aðstoð.
Í samhæfingarstöð almannavarna er nú unnið að því að ná yfirsýn stöðu mála á Suðurlandi. Segir í tilkynningu, að mikil mildi sé hve fáar tilkynningar hafi borist um slys á mönnum.Hins vegar sé eignatjón mikið, sérstaklega í Hveragerði og nágrenni. Í Hveragerði fóru lagnir víða í sundur og einnig varð neysluvatn gruggugt.
Nú eru um 300 björgunarmenn frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu á vettvangi, lögreglumenn eru um 40 og frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru 26 menn auk tækja og búnaðar. Fjöldahjálparstöðvar á vegum Rauða kross Íslands eru við grunnskólann í Hveragerði og við Sólvallaskóla á Selfossi og verða þær opnar í nótt.
Í dag voru opnaðar fjöldahjálparstöðvar í grunnskólanum í Þorlákshöfn og í safnaðarheimilinu á Hellu. Einnig voru opnaðar miðstöðvar á Hvolsvelli, Hellu, Þykkvabæ, Stokkseyri og Eyrarbakka. Lítil aðsókn hefur verið í þær og verður þeim lokað í kvöld.
Ekki reyndist þörf á að opna fjöldahjálparstöð í Menntaskólanum í Hamrahlíð. Þeim, sem ekki vilja dvelja á skjálftasvæðunum í nótt og hafa ekki í önnur hús að venda í Reykjavík, er þó bent á að hafa samband við fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins í Vallarskóla á Selfossi og við íþróttamiðstöðina í Hveragerði því fjölmargir hafa sett sig í samband við Rauða krossinn og boðið húsnæði fyrir þá sem þurfa.
Myndasyrpa: Jarðskjálftamyndir
Birtingardagur: Fimmtudaginn, 29. maí 2008
Bloggað um fréttina
-
Herdís Sigurjónsdóttir Almannavarnir svo sannarlega ekki að ástæðulausu -
Sylvía Fyrirboði?
Innlent »
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 29. maí 2008, Innlent Fjöldahjálparstöðvar opnar í Hveragerði og á Selfossi í nótt
- Föstudagur, 30. maí 2008, Innlent Hættuástandi aflétt
- Fimmtudagur, 29. maí 2008, Innlent Fjöldahjálparstöð opnuð í Reykjavík ef þörf krefur
- Sunnudagur, 1. júní 2008, Innlent Snarpir kippir í nótt og morgun
- Fimmtudagur, 29. maí 2008, Innlent Pósthús Íslandspósts á Selfossi lokað á morgun
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“





































