Bleikur Fokker
Fokker 50 flugvél Flugfélags Íslands hefur verið bleikmerkt til að vekja athygli á söfnunarátakinu „Á allra vörum“ til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands í baráttunni við brjóstakrabbamein. Þetta er í fyrsta sinn sem flugvél í áætlunarflugi á Íslandi er máluð á þennan hátt til styrktar málefn, að því er segir í tilkynningu.
„Á allra vörum“, söfnunarátak til kaupa á nýjum stafrænum röntgenbúnaði sem greinir brjóstakrabbamein, hefur nú staðið yfir í mánuð og gengið framar vonum, samkvæmt tilkynningu. Fjármunum hefur verið safnað með því að selja bleikt varalitagloss frá Yves Saint Laurent merkt átakinu og hafa nú þegar selst hátt í 20.000 stykki.
„Við erum í skýjunum yfir þeim viðtökum sem átakið hefur fengið. Við renndum blint í sjóinn og töldum að það væri raunhæft markmið að selja 10.000 gloss. Það er því ótrúlegt að á fyrsta mánuðinum sé búið að selja nær tvöfalt það magn. En við erum hvergi nærri hættar. Þessi frábæri fyrsti mánuður hefur hvatt okkur enn frekar til dáða enda er það ærið verkefni að efla leitarstöð Krabbameinsfélagsins. Við vonum því að almenningur og fyrirtæki muni áfram styðja við bakið á okkur í baráttunni,“ segir Gróa Ásgeirsdóttir, einn skipuleggjenda átaksins, í tilkynningu.
Nýr tækjabúnaður Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins eykur möguleika á að greina krabbamein í brjóstum á frumstigi en góður árangur í meðferð þess ræðst ekki síst af því að það greinist sem allra fyrst. Auk tækjakaupanna er markmið átaksins að leggja Krabbameinsfélaginu lið við að koma nýjum tækjum sem fyrst í gagnið og upplýsa, með ýmiss konar kynningarefni, hve alvarlegur sjúkdómur brjóstakrabbamein er.
Glossið verður til sölu næstu þrjá mánuði um borð í flugvélum Icelandair og í fríhafnarverslunum Flugfélags Íslands í Reykjavík og á Akureyri. Almenningur getur jafnframt keypt gloss hjá Krabbameinsfélagi Íslands, auk þess sem þau eru einnig seld fyrirtækjum sem vilja styrkja átakið með því að kaupa þau handa starfsfólki sínu.
Innlent »
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 29. apríl 2008, Innlent Varalitir seldir til styrktar Krabbameinsfélaginu
- Miðvikudagur, 5. nóvember 2008, Innlent Á allra vörum skilaði 50 milljónum króna
- Miðvikudagur, 30. apríl 2008, Innlent Varagljái fyrir gott málefni
- Mánudagur, 23. júní 2008, Innlent 35 milljónir króna söfnuðust í söfnunarþætti
- Mánudagur, 1. október 2007, Innlent Leigubílar skipta út gula litnum fyrir bleikan
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“





































