Mikill áhugi á myndum Viggo

Viggo Mortensen áritar bækur í Grófarhúsinu í dag.
Viggo Mortensen áritar bækur í Grófarhúsinu í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Mikill áhugi er á ljósmyndasýningu kvikmyndaleikarans Viggo Mortensens, sem opnuð var í dag í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Mortensen hefur einnig áritað þar bækur sem hann hefur gefið út um ljósmyndun og önnur áhugamál hans.

Ljósmyndasýningin ber yfirskriftina Skovbo og vísar í efni myndanna, tré og skóga. Mortensen stillir verði myndverkanna mjög í hóf og rennur andvirði seldra verka til Náttúruverndarsamtaka íslands.

Viggo Mortensen kemur víða við í listinni; semur ljóð, málar, tekur ljósmyndir og semur tónlist. Kunnastur er hann þó sem kvikmyndaleikari og var hann tilnefndur til Óskarsverðlauna í fyrra.

Mikill áhugi er á ljósmyndasýningu Mortensens.
Mikill áhugi er á ljósmyndasýningu Mortensens. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert