Tónleikar á Víðistaðatúni

Sálin á sviðinu á Víðistaðatúni.
Sálin á sviðinu á Víðistaðatúni. mbl.is/Árni Sæberg

Nú standa yfir tónleikar á Víðistaðatúni í Hafnarfirði í tilefni af 100 ára afmæli bæjarins. Tónleikarnir hófust klukkan 17 og standa til klukkan 23. Margir af þekktustu tónlistarmönnum og hljómsveitum landsins koma þar fram, þar á meðal Megas og Björgvin Halldórsson, Bermúda, Eurobandið, Baggalútur,  Sprengjuhöllin og Sálin.

Á svæðinu hefur verið komið upp fjölmörgum grillum sem gestir geta nýtt sér á meðan á tónleikunum stendur.

Afmælishátíðin hófst á fimmtudag og henni lýkur á morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Hafnarfjarðarbæ hefur verið mikið af fólki í bænum í dag enda hefur heldur betur viðrað fyrir útihátíðarhöld. 

Á morgun, sem er hinn eiginlegi afmælisdagur bæjarins, verður sjómannabragur á hátíðardagskránni enda er þá sjómannadagurinn.    Slegið verður upp bryggjuballi og fiskiveislu á hafnarbakkanum auk þess sem boðið verður upp á 100 metra langa tertu á Strandgötunnu.
 

Dagskrá afmælishátíðarinnar á morgun 

Megas á sviðinu á Víðistaðatúni í kvöld.
Megas á sviðinu á Víðistaðatúni í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg
Margir hafa tekið þátt í afmælishátíð Hafnarfjarðar í dag.
Margir hafa tekið þátt í afmælishátíð Hafnarfjarðar í dag. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert