Ekki forsendur til að greiða skaðabætur
AP
Í svari til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna mun íslenska ríkið lýsa yfir vilja sínum til að huga að lengri tíma áætlun um endurskoðun á íslenska fiskveiðistjórnarkerfinu eða aðlögun í átt að áliti mannréttindanefndarinnar, sem taldi kerfið brjóta gegn mannréttindum. Kærendum í málinu verða ekki greiddar skaðabætur.
Þetta kom fram hjá Einari K. Guðfinnssyni, sjávarútvegsráðherra, á Alþingi á síðasta degi þingsins á fimmtudag. Einar sagði, að íslensk stjórnvöld hefðu falið þremur lögfræðingum, Björgu Thorarensen prófessor, Karli Axelssyni, hrl. og Arnari Þór Stefánssyni, hdl., að leggja fram mat á álitinu og tillögur um viðbrögð.
„Í svari til mannréttindanefndarinnar mun íslenska ríkið lýsa yfir vilja sínum til að huga að lengri tíma áætlun um endurskoðun á íslenska fiskveiðistjórnarkerfinu eða aðlögun í átt að áliti mannréttindanefndarinnar. Ljóst er þó að slíkt gerist ekki í einu vetfangi enda mun nefndin hafa skilning á því að kerfi sem hefur mótast á áratugum er ekki hægt að umbylta á sex mánuðum. Þetta er langtímaverkefni og sérstökum vinnuhópi verður falið það," sagði Einar.
Hann sagði að íslenska ríkið teldi ekki forsendur til þess að greidda skaðabætur til viðkomandi kærenda. „Slíkt gæti auk þess leitt til að fjöldi manns gerði skaðabótakröfur á hendur ríkinu sem fá í gildandi landsrétti ekki staðist, samanber dóm Hæstaréttar í Vatneyrarmálinu. Auk þess mundi í þessu felast viðurkenning í þá veru að allir, sem eiga eða ákveða að kaupa skip með veiðileyfi, ættu rétt til úthlutunar aflaheimilda. Þessi staða mundi í raun þýða að íslenska fiskveiðistjórnarkerfinu væri kollvarpað með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir stjórn fiskveiðiauðlindanna og vernd fiskistofna á Íslandsmiðum," sagði Einar.
Bloggað um fréttina
-
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson Átti einhver von á afgerandi svari? -
Sigurður Jón Hreinsson Sjómannadagur 2008 -
Sigurður Þórðarson Ríkisstjórnin ætlar ekki að virða mannréttindi á Íslandi -
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir Í TILEFNI SJÓMANNADAGS EÐA HVAÐ .......? MANNRÉTTINDANEFNADAR ? -
Sigurbrandur Jakobsson Meiri stöðnun framundan -
Björgvin Guðmundsson Verið að kokka svar,sem er ekkert svar -
Ómar Ragnarsson Hrynur ýsan næst? -
Haraldur Bjarnason Já en???? -
Atli Hermannsson. Í tilefni sjómannadagsins. -
Níels A. Ársælsson. Skömmtun á gúmmístígvélum, lok þorskastríða og hátíðaræða sjávarútvegsráðherra
Innlent »
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 9. júní 2008, Innlent Svar sent til mannréttindanefndar SÞ
- Fimmtudagur, 12. júní 2008, Innlent Segja stjórnvöld áfram brjóta mannréttindi
- Þriðjudagur, 10. júní 2008, Innlent VG vill skýrari svör til mannréttindanefndar SÞ
- Miðvikudagur, 18. mars 2009, Innlent Tekist á um mannréttindamál
- Þriðjudagur, 9. september 2008, Innlent Kynnir mannréttindanefnd SÞ afstöðu Frjálslynda flokksins
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































