Snarpir kippir í nótt og morgun
Tveir eftirskjálftar, annar 3,5 stig á Richter og hinn 3,8 stig urðu í nótt á skjálftasvæðinu í Ölfusi. Fyrri kippurinn varð klukkan 1:57 og hinn klukkan 2:07. Í morgun klukkan 7:11 varð skjálfti sem mældist 2,9 stig. Einnig varð fjöldi minni skjálfta á svæðinu en heldur er þó að draga úr skjálftavirkni, að sögn sérfræðinga Veðurstofunnar.
Skjálftavirknin var fyrri hluta nætur mest við suðurenda meginsprungunnar um 5 km norðan við Eyrarbakka. Skjálftinn klukkan sjö varð hins vegar á meginsprungunni um 3 km norðan við Hveragerði.
Einnig hefur verið skjálftavirkni um 5 km suðvestur af Skálafelli á Hellisheiði. Þar varð skjálfti að stærð 2,6 klukkan 3:33 í nótt.
Bæjarstjórn Árborgar hefur boðað til íbúafundar vegna jarðskjálftanna klukkan 17 í dag í Sunnulækjarskóla á Selfossi.
Þjónustumiðstöðvar, sem opnaðar hafa verið á Selfossi og í Hveragerði, verða opnar í dag frá klukkan 10 til 16. Fjöldi íbúa hefur nýtt sér þjónustu miðstöðvanna. Þar hafa starfsmenn bæjarfélaganna, sjálfboðaliðar frá Rauða krossinum og björgunarsveitunum, frá lögreglunni og almannavörnum, gefið íbúum ráð og aðstoðað með ýmis mál vegna jarðskjálftana.
Á Selfossi er þjónustumiðstöðin í Tryggvaskála en í Hveragerði er þjónustumiðstöðin í húsi Rauða krossins á jarðhæð. Eftir helgina verða þjónustumiðstöðvarnar opnar frá klukkan 13 –20.
Að sögn lögreglu er drykkjarvatn í Hveragerði ekki talið drykkjarhæft. Drykkjarvatn í Árborg er hins vegar talið drykkjarhæft. Hægt verður að nálgast drykkjarvatn á flöskum utan við söluskála Shell á Stokkseyri og við söluskála Olís á Eyrarbakka. Á Selfossi er unnt að nálgast drykkjarvatn í Tryggvaskála. Í Hveragerði verður hægt að nálgast drykkjarvatn í húsi hjálparsveitarinnar við Austurmörk.
Bloggað um fréttina
-
Ía Jóhannsdóttir Hugum að fólkinu okkar næstu mánuði -
Sigurður Þorsteinsson Fleiri skjálftakippir
Innlent »
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 31. maí 2008, Innlent Vatnið í Árborg talið drykkjarhæft
- Föstudagur, 30. maí 2008, Innlent Hættuástandi aflétt
- Laugardagur, 31. maí 2008, Innlent Eftirskjálftar halda áfram
- Laugardagur, 7. júní 2008, Innlent Skjálftavirni að aukast á ný
- Mánudagur, 16. júní 2008, Innlent Jarðskjálfti á Suðurlandi
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“





































