Deyfilyf ekki til í landinu
Eftir Guðrúnu Hálfdánardóttur guna@mbl.is
Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, segir að í ljós hafi komið að deyfilyf sem þarf að nota til þess að svæfa hvítabirni, er ekki til í landinu. Jafnframt er sú tegund riffils sem notaður er við að skjóta deyfilyfinu ekki tiltæk í Skagafirði. Segir Þórunn að ekki megi gleyma því að hvítabirnir geti verið stórhættulegir bæði mönnum og skepnum.
Þórunn sagði í samtali við mbl.is að hún hafi strax haft samband við Umhverfisstofnun, Þorstein Sæmundsson, forstöðumann náttúrufræðistofu norðvesturlands og sýslumanninn í Skagafirði, þegar fréttist af ísbirninum. Þorsteinn fór strax með lögreglu upp á Þverárfjall og var í stöðugu sambandi við ráðherra og sýslumann um hvað skyldi gera.
Engin áætlun til
Segir Þórunn að það verði að segjast eins og er að ekki er til áætlun um hvernig bregðast eigi við þegar ísbjörn gengur á land svo nálægt byggð og nú var. Ekki er heldur til áætlun um hvert flytja ætti dýrið.
Í Noregi gildir það að ísbirnir eru skotnir ef þeir ganga á land og á Svalbarða er reynt að fæla þá aftur út á hafís með hávaða. Ef þeir ganga hins vegar á land á ný eru þeir felldir. Í tilvikinu í Skagafirðinum er ekki um neinn hafís að ræða og var það mat lögreglu þegar björninn fór á hreyfingu og stefndi niður af fjallinu í þokunni þá væri ekki annað til ráða en að fella dýrið, að sögn Þórunnar Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra.Bloggað um fréttina
-
Torfi Kristján Stefánsson Ganga ísbirnir á land í Noregi? -
Bylgja Hafþórsdóttir Fáránlegur fyrirsláttur!!! -
G. Valdimar Valdemarsson Hvað er að ????? -
Guðrún Emilía Guðnadóttir Ekki viljum við hvítabirni á Íslandi.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 3. júní 2008, Innlent „Hefði átt að loka veginum"
- Fimmtudagur, 20. nóvember 2008, Innlent Óhætt að skjóta hvítabirni?
- Fimmtudagur, 5. júní 2008, Innlent Regla að svæfa birnina
- Þriðjudagur, 3. júní 2008, Innlent Reynt að koma í veg fyrir að fella þurfi næsta hvítabjörn
- Mánudagur, 16. júní 2008, Innlent Erfið aðgerð framundan að Hrauni
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju






































