Hlýjasti maímánuður í 48 ár

Íslendingar nutu veðurblíðunnar í maí
Íslendingar nutu veðurblíðunnar í maí mbl.is/RAX

Bjart er yfir í Reykjavík og mældist 10 stiga hiti á mælum Veðurstofu Íslands klukkan sex í morgun. Er þetta í takt við veðrið í nýliðnum mánuði en samkvæmt veðurvef Einars Sveinbjörnssonar var maímánuður sá hlýjasti í 48 ár í Reykjavík. Á Akureyri hefur maí ekki verið jafn hlýr í 17 ár.

 Mánuðurinn var alveg laus við norðanhret en það er frekar óvenjulegt, en þó ekki einsdæmi, að sögn Einars.

Í Reykjavík mældist meðalhitinn  8,6°C.  Svo hlýtt hefur ekki verið frá 1960, en þá var ívið hlýrra.  Á Akureyri var hitinn 8,0°skv. bráðabirgða reikningum.  Talsvert hlýrra var hins vegar 1991.  Í samanburði við fyrra ár nær mánuðurinn þó engan veginn maí 1935 sem er klárlega sá hlýjasti frá upphafi mælinga.  Þá fór meðalhitinn í Reykjavík eitthvað yfir 9 stig.

Veðurspá dagsins: Austlæg átt, yfirleitt 5-10 m/s, skýjað og dálítil súld með köflum austan- og suðaustanlands, en bjart vestanlands. Austan og norðaustan 5-13 í kvöld, hvassast norðvestanlands, og fer að rigna, fyrst um landið sunnanvert. Styttir upp undir morgun, en áfram dálítil væta um landið sunnan- og austanvert. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast vestantil, að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands.

Bloggvefur Einars Sveinbjörnssonar 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert