Fundu hvílustað Bjarna Sívertsens í Kaupmannahöfn

stækka

Mbl/Brynjar Gauti Sveinsson

mbl.is Sigrún Erna Geirsdóttir sigrunerna@mbl.is
Hópur Hafnfirðinga reynir nú að fá leyfi fyrir því að setja upp minnisvarða við danskan kirkjugarð. Í ómerktri gröf í kirkjugarðinum hvílir Bjarni Sívertsen sem oft er kallaður faðir Hafnarfjarðar. Kirkjugarðurinn er friðaður og óvíst hvort leyfi fyrir minnismerkinu fæst.

Faðir Hafnarfjarðar 

Bjarni Sívertsen kom fótum undir skipasmíði á Íslandi og var að auki mikill umsvifamaður í verslun í Hafnarfirði og fiskveiðum. Er hann oft nefndur faðir bæjarins og stendur um hann minnisvarði í Hellisgerði. Eftir að hann missti konu sína giftist hann danski stúlku og flutti með henni til Kaupmannahafnar þar sem hann lést tveimur árum síðar. 

Hópur eldri borgara í Hafnarfirði ákvað fyrir nokkru að ferðast til Danmerkur og kviknaði sú hugmynd hjá Kristjáni Guðmundssyni, framkvæmdastjóra öldrunarsamtakanna Hafnar, að gaman væri að minnast þessa merka manns. Sérstaklega með tilliti til þess að Hafnarfjörður fagnar nú 100 ára kaupstaðaafmæli.

Rannsóknarvinna liggur að baki

Kristján segir að fyrst hafi þetta takmark virst nokkuð fjarlægt en síðan hafi þetta hlaðið utan á sig og fólk frétti af þessu. Lítið var vitað um Bjarna eftir að hann flutti til Danmerkur og óvitað hvar hann væri grafinn. Með hjálp sendiherra Íslands í Danmörku og góðra manna sem voru fróðir um danska sögu tókst að þrengja leitina og bárust böndin að Lyngby kirkjugarðinum.  „Síðan ljósritaði systursonur minn kirkjubækurnar og sendi mér afrit með netpósti. Með aðstoð tókst mér svo að lesa í gegnum þær og komst að því að Bjarni reyndist liggja þar í ómerktri gröf.“

Friðaður kirkjugarður 

Björninn er þó ekki unninn því kirkjugarðurinn í Lyngby er friðaður og ekki er heimilt að hrófla við honum á neinn hátt. Hópurinn hefur meðferðis málmsteypu með sér með danskri og íslenskri áritun og vill gjarnan setja hann upp í kirkjugarðinum en verður mögullega að láta sér lynda að setja hann upp rétt fyrir utan garðinn. Mun hópurinn sækja messu í Lyngby kirkjuna kl 11 á sunnudag og eiga fund með ráðamönnum hans. Hafa verið bréfaskriftir á milli aðila í vetur. 

Sá elsti í hópnum níræður 

Hópurinn telur fimmtíu manns og er sá elsti níræður. Hefur margt verið gert og lögð sérstök áhersla á að kynna sér H.C Andersen og slóðir Jónasar Hallgrímssonar. Naut hópurinn velvilja velunnara og Hafnarfjarðarbæjar til að fjármagna förina sem lýkur á sunnudagskvöld.

Kristján H. Guðmundsson.

Kristján H. Guðmundsson. mbl.is

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »
Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.

Meintar falsanir til lögreglunnar

19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HANNA OG SMÍÐA STIGAFÁST Á ÝMSUM BYGGING
Hanna og smíða stiga Fást á ýmsum byggingarstigu...
125 cc PitBike
Til sölu lítið notað X-motos PitBike árg. 2008. verð 70 þús! Baldur 848-6972...
Sportbátur til sölu
Balyner 175, 2006 árgerð með 135 hestafla innanborðs bensín vél. Vagn, yfirbreið...
GARÐSKÁLI GEYMSLUR GESTAHÚS
Garðskáli - geymslur - gestahús Vönduð hús ú...
 
Samkoma sunnudagur
Félagsstarf
Sunnudagur Kl. 11.00 Samkoma o...
Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar reykjavíkur

MENNTUNARSJÓÐUR Mæðrastyrksnefndar Re...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...