Engin refsing í líkamsárásarmáli
Tveimur karlmönnum, sem ákærðir voru fyrir líkamsárás á skemmtistað á Selfossi þann 16. október 2005 er ekki gert að sæta refsingu í málinu með hliðsjón af þeim drætti sem hefur orðið á málinu við rannsókn þess og þar til ákæra var gefin út, svo og að um hegningarauka er að ræða í báðum tilfellum. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Suðurlands frá því í morgun.
Í niðurstöðu dómsins kemur fram að ekki er ágreiningur um að ráðist hafi verið á manninn sem kærði tvímenningana fyrir líkamsárás tiltekið kvöld enda fái það stuðning í vottorði læknis og vitnisburði fólks á staðnum. Ákærðu neituðu hins vegar báðir sök og muna ekki eftir því hvort þeir voru á skemmtistaðnum umrætt kvöld, enda tvö og hálft ár síðan atburðir gerðust.
„Verða ákærðu því sakfelldir fyrir þá háttsemi eins og henni er lýst í ákæru og er hún réttilega færð til refsiákvæða. Við ákvörðun refsingar verður litið til þess óheyrilega dráttar sem hefur orðið á máli þessu frá því að kæra barst lögreglu og þar til ákæra var gefin út. Þá voru skýrslur ekki teknar af vitnum fyrr en rúmum tveimur árum eftir að brotið var kært. Engin haldbær skýring hefur fengist á þessum drætti,” að því er segir í niðurstöðu héraðsdóms.
Ákærðu er hins vegar gert að greiða allan sakarkostnað er hlotist hefur af máli þessu, rúmar sex hundruð þúsund krónur auk þess sem þeim er gert að greiða fórnarlambinu 387.345 krónur í skaðabætur.
Innlent »
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 28. september 2007, Innlent Fanga ekki gerð frekari refsing fyrir vörslu fíkniefna
- Þriðjudagur, 30. desember 2008, Innlent Sýknaður af ákæru um líkamsárás
- Föstudagur, 24. apríl 2009, Innlent Ekki refsað fyrir að geyma fíkniefni í fangaklefa
- Mánudagur, 15. október 2007, Innlent Sakfelldur af ákæru um líkamsárás en ekki gerð sérstök refsing
- Fimmtudagur, 16. apríl 2009, Innlent Braut gegn 14 ára þroskaheftri stúlku
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































