Eltu kindur innanbæjar

Lögregla og bæjarstarfsmenn á Egilsstöðum stóðu í óvenjulegum eltingaleik í gær, en þrjár kindur frá bænum Lundi höfðu gert sér bæjarferð. Barst eltingaleikurinn um nokkur hverfi Egilsstaða áður en ærnar voru handsamaðar, færðar á bílpall og þeim ekið til síns heima.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Ók á ljósastaur

17:29 Umferðaróhapp varð á Laugarnesvegi um kl. 14 í dag. Lögreglan fór á staðinn en ökumaður bifreiðarinnar hafði ekið á ljósastaur. Enginn slasaðist en bíllinn er skemmdur og óökuhæfur. Var hann fjarlægður af slysstað með kranabifreið. Meira »
Hundur af border collie-kyni.

Hundur fastur í neti

17:13 Lögreglan fékk í morgun tilkynningu um hund sem var fastur í netadræsum við Ægisgarð. Lögregla og tækjabíll frá slökkviliði fór á vettvang. Búið var að bjarga hundinum úr netunum og var hann frekar þjakaður en glaður björguninni. Meira »

Hjartað í tónlist en höfuðið í lækningum

Magni Ásgeirsson söng lag Sveins Rúnar, Hugarró, af mikilli innlifun.
16:12 Síðustu vikurnar hefur lagahöfundurinn Sveinn Rúnar Sigurðsson, sem átti tvö lög í úrslitakeppni Söngvakeppni sjónvarpsins í gærkvöldi, starfað við lækningar á Heilsugæslunni í Árbæ á daginn og sinnt undirbúningi Evróvisjón á kvöldin. Meira »

Nálgast 30.000 undirskriftir

Skorað er á forsetann að gefa áfram kost á sér til embættis.
15:19 Undirskriftum fjölgar enn á vefsíðunni Áskorun til forseta þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að gefa áfram kost á sér til embættis í komandi forsetakosningum. Meira »

Bæta við strætóferðum á Suðurland

Mjóddin er upphafs- og endastaður Suðurlandsstrætósins.
15:10 Frá og með deginum í dag verða gerðar nokkrar breytingar á akstri Strætó bs. á Suðurlandi. M.a. verður bætt við hádegisferð frá Reykjavík á Selfoss og til baka til Reykjavíkur, tekinn upp akstur í Reykholt og bætt við ferð frá Vík til Hafnar á þriðjudögum. Meira »

Mikið annríki á Læknavaktinni

15:33 Mikið annríki hefur ríkt á Læknavaktinni um helgina, og nánast stöðugur straumur fólks. Sökum þessa hefur biðtími lengst og kalla þurfti út lækna bæði í gær og í dag. Upplýsingar um hvað helst er að hrjá landann liggja þó ekki fyrir. Meira »

Kjörin formaður Sambands ungra framsóknarmanna

Ásta Hlín Magnúsdóttir
15:18 Ásta Hlín Magnúsdóttir var í dag kjörin nýr formaður Sambands ungra framsóknarmanna. Ásta Hlín fékk 32 atkvæði eða 53%. Mótframbjóðandi hennar, Ragnar Stefán Rögnvaldsson, fékk 28 atkvæði eða 47%. Meira »

Gæði röntgenmynda margfaldast

Lesið úr röntgenmyndum á Landspítalanum í Fossvogi. Mynd úr safni.
15:06 Tekinn hefur verið í notkun stafrænn búnaður til framköllunar á röntgenmyndum á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga. Þessi nýju tæki koma í stað gamalla tækja sem voru úr sér gengin og nær ónýt. Meira »

Nefbrotinn eftir árás

Maðurinn var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl.
15:04 Karlmaður var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala snemma í morgun eftir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu sagðist maðurinn hafa orðið fyrir árás tveggja manna sem hann kunni ekki deili á, ekki hefur tekist að hafa upp á þeim. Maðurinn er talinn nefbrotinn. Meira »

Börnin uppgötva undraheima Legó

Börnin skemmtu sér hið besta við að búa til alls kyns byggingar úr kubbunum.
14:05 Gríðarleg umferð hefur verið í Ráðhúsi Reykjavíkurborgar um helgina en þar er sýningin Undraheimar Legó sett upp. Yngstu kynslóðinni gefst þar kostur á að gleyma sér framkvæmdum með fjölmarga Legó-kubba. Meira »

17 kýr mjólkuðu yfir 10 þúsund kíló

14:50 Þær voru duglegri að mjólka í fyrra, kýrnar í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu, en árið á undan. Í fyrra mjólkuðu sautján kýr yfir 10 þúsund kílóum en árið 2010 voru þær aðeins fimm. Meira »

Evrópusambandið kynnir sig sjálft

Fánar Evrópusambandsins fyrir utan höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar sambandsins í Brussel.
13:35 Sérstök upplýsingaskrifstofa um Evrópumál, sem fengið hefur heitið Evrópustofa, var opnuð við Suðurgötu í Reykjavík í síðasta mánuði en markmið hennar er að miðla hlutlægum upplýsingum til Íslendinga um Evrópusambandið og kosti og galla þess fyrir Ísland að ganga í sambandið. Meira »

SUF vill draga ESB-umsóknina til baka

13:34 Samþykkt var á 37. þingi Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) í morgun að aðildarviðræðum við Evrópusambandið yrði hætt og umsókn Íslands um aðild að sambandinu dregin til baka. Meira »

Enginn með einkarétt á Samstöðu

Lilja Mósesdóttir.
12:44 Lilja Mósesdóttir, formaður stjórnmálaflokksins Samstöðu, segir að átta félög hafi verið skráð í fyrirtækjaskrá undir nafninu Samstaða. Eitt af þeim var stjórnmálaafl á landsvísu sem breytti nafni sínu til að Samstaða Lilju gæti fengið nafn sitt. Meira »

Handteknir fyrir að keyra á mann

Ekið var á manninn í Austurstræti.
11:03 Tveir menn voru handteknir á heimili annars þeirra á sjötta tímanum í morgun vegna gruns um að annar hvor þeirra hefði ekið á mann í Austurstræti á fimmta tímanum. Mennirnir gista fangageymslur og verða yfirheyrðir þegar líður á daginn. Meira »

Vilja efla siðferði í stjórnmálum

Þingmenn Hreyfingarinnar standa að Breiðfylkingunni.
12:53 Stofnfundur Breiðfylkingarinnar hófst á hádegi en að henni standa Borgarahreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn, Hreyfingin og einstaklingar úr stjórnlagaráði. Í kjarnastefnu fylkingarinnar segir að leysa verði skuldavanda heimilanna og efla siðferði í stjórnmálum. Meira »

Yrði ōðruvísi biskup myndskeið

biskupsframbod gunnar
11:45 MBL Sjónvarp ræðir á næstu vikum við frambjóðendur í biskupskjörinu sem fer fram á næstunni. Þannig gefst almenningi tækifæri á að kynnast þeim sem eru í framboði þó kosningaréttur sé ekki almennur. Séra Gunnar Sigurjónsson prestur í Digraneskirkju ríður á vaðið. Meira »

Hefur hátt í fangaklefa

10:51 Lögregla höfuðborgarsvæðisins var kölluð að samkvæmi við Smiðjustíg á sjöunda tímanum í morgun þar sem einn gestanna var með uppsteyt. Að sögn lögreglu var maðurinn óviðráðanlegur af bræði og réðst hann á lögreglumenn sem hugðust vísa honum úr samkvæminu. Hann var handtekinn og er í fangaklefa, þar sem hann hefur hátt, að sögn lögreglu. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Heimanuddpakkinn
Höfuðpúði sem er settur undir rúmdýnu svo byrja bara nudda eftir DVD disk sem fy...
Hönnun - umbrot - prentun
Prentum nafnspjöld, reikninga í þríriti, bréfsefni, dreifibréf ásamt flest öllu ...
Aquaflex grindarbotnsþjálfi
Hvað gerist ef þú hlærð of mikið, hnerrar óvænt, beygir þig fram eða ferð í leik...
Sumarhús - fjárfesting
Glæsilegt sumarhús til sölu á suðurlandi. Hefur verið í leigu til erlendra ferða...
 
Stúkan edda
Félagsstarf
l EDDA 6012020719 III...
Stúkan hamar
Félagsstarf
l HAMAR 6012020719 III...
Til sölu
Tilboð - útboð
Til sölu Sveitarfélagi...
Húsnæði óskast

Húsnæði óskast til kaups eða leigu Rót...